Ég mæli eindregið með að fólk horfi á þáttinn okkar um Silfurdrengina á gamlársdag. Ég er búin að sjá glefsur og mér varð alveg hlýtt í hjartanu. Það er gaman að rifja upp þessa ósviknu hamingju og gleði og stemninguna sem var hérna heima á meðan strákarnir fóru á kostum í Peking. Ekkert krepputal, allt var í blússandi hamingju bara.
Ég á eftir að fella nokkur tár, ég verð alltaf svo mjúk yfir handboltalandsliðinu
RÚV, gamlársdagur kl. 13.20, þú og vasaklútur.
fara þeir úr að ofan?
ÚR AÐ OFAN ÚR AÐ OFAN ÚR AÐ OFAN!!!
já ég var mjög glöð yfir silfurdrengjunum. ég gleymdi alveg í klukkutíma að vera reið yfir kjánalegu stjórnmálamönnunum sem stóðu uppi á sviði.