the onion

31 08 2008

ok ég er sein, en ég er núna fyrst eiginlega að uppgötva The Onion, thanks to Höski… tryllingslega fyndið margt af þessu..

Lími þetta inn af youtube, því ég get ekki sett videoin af Onion beint inn í færsluna mína.. Þetta ætti að hit home hjá lesendum Cosmo tíhíhíh





uppvask

30 08 2008

Djöfull er leiðinlegt að vaska upp eitthvað af eftirtöldu:

- hvítlaukspressur

- salatskálar

- stóra ostabakka sem passa ekki í vaskinn og maður sullar út um allt

- rauðvínsglös

 

Hvað finnst ykkur leiðinlegast að vaska upp?

 

Mig langar í uppþvottavél. Dæs.





fjórum árum síðar

25 08 2008

Þá eru Ólympíuleikarnir árið 2008 búnir. Snörp vinnutörn og frábært að geta seinna sagst hafa verið á vaktinni þegar Ísland fékk silfurverðlaunin í handbolta!! :) Maður er örþreyttur en ánægður.

Að venju finnst mér gaman að spá í hvar ég verð þegar næstu Ólympíuleikar verða haldnir.. eða í London árið 2012. Fjögur ár hljómar alltaf svo langur tími, en er það engan veginn. Flýgur hreinlega hjá. Ég bloggaði um þessar pælingar mínar fyrir fjórum árum. Hér er færslan. Ekki var ég beint sannspá, en það er líka bara allt í lagi. Þetta voru fjögur FRÁBÆR ár á milli Aþenu og Peking og ég myndi aldrei skipta þeim út fyrir eitthvað annað! Vonandi bara verða árin milli Peking og Lundúna jafn skemmtileg.

Ok, árið 2012 verð ég orðin 33 ára. Jæks!! Kannski með masterspróf og kannski með barn. Kannski á Íslandi og kannski mega rich bitch.

En alveg pottþétt reynslunni ríkari.





glittir í gullið

23 08 2008

 

Svei mér þá. Aldrei hefur verið jafngaman að láta kalla sig inn af frídögum – Ég átti að vera í fríi fös, lau og sun, en ónei, glætan :) Hér verða allir á vakt sem vettlingi geta valdið – þetta er jú ein stærsta stund í íslenskri menningarsögu.

Það verður vaknað ekki seinna en 5 í fyrramálið til að undirbúa sig fyrir útsendingu.. Ég stórefast um að það verði mikið sofið í nótt af spenningi fyrir leikinn..

Þetta verður hreint út sagt ÆÐISLEGT á morgun. Sama hvernig fer. En mikið væri nú stórkostlegt að taka gullið.. Þá veit ég að ég fer að gráta!!

Áfram Ísland!





hinn fullkomni dagur

20 08 2008

Ísland komst í undanúrslit Ólympíuleikanna en ekki Danmörk. Ég er í skýjunum.





litla útihátíðin 2008..

20 08 2008

.. var yndisleg. Ógeðslega gaman. Ég hef bara aldrei upplifað jafn fullkomna útilegunótt – blankalogn, hlýtt og þurrt. Svo var varðeldurinn alveg að skila sínu, sjaldan sem maður þarf að renna frá flíspeysunni um miðjar nætur í útilegu.

Þetta verður örugglega árlegt.





Hjúkk!!

14 08 2008

já það er eins gott að fá meldingu frá flugfélaginu sínum um svona STÓRKOSTLEGAR breytingar..

eftirfarandi var sent á okkur Jóu vegna flugs frá Lima til Buenos Aires:

Depart:   23:35 (LIM)

Arrive:   07:05 (EZE) <– was [07:06]

Þetta hefði getað farið illa.





10 mín

9 08 2008

Getiði hver skrifaði og klippti EINN ÞRIÐJA fréttatímans í kvöld?

Moi.

Dugleg stelpa. *klappar sjálfri sér á bakið*





strákaskipulag

7 08 2008

Það getur verið ofboðslega óþægilegt að vera á vinnustað þar sem eingöngu eru karlar. Ég er alveg búin að sjá það að kynin einfaldlega fúnkera ekki eins og þá sérstaklega í félagslegum skilningi. Nú veit ég að ég er að alhæfa svolítið, en þó finnst mér þetta vera nokkurn veginn það sem gengur og gerist.

Strákar einhvern veginn skipuleggja aldrei hittinga fram í tímann! Það er ekki búið að ákveða að í næstu viku muni vinahópurinn hittast og borða saman eða eitthvað svoleiðis. Þegar þeir hittast með svo skipulögðum hætti er það gert kannski einu sinni á 6 mánaða fresti. Og alveg merkilegt, Gústi hefur til dæmis hitt vinkonur mínar og maka þeirra oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Ég hef aðeins hitt brotabrot af hans vinum. Strákavinahópar hittast bara ekki með konunum sínum og gera eitthvað skemmtilegt, þeir hittast sín á milli EINIR. Konurnar koma með á árshátiðir og svoleiðis.

Stelpur eru gjörólíkar. Það er voða gaman að hittast með köllunum sínum og gera eitthvað skemmtilegt. Vináttubönd eru styrkt og allir skemmta sér saman. Svo eru stelpur mjög skipulagðar í hittingum sín á milli. Ég er til dæmis í tveimur saumaklúbbum sem hittast hvor um sig einu sinni í mánuði, að minnsta kosti. Þá eru minni vinkonuhópar sem vilja hittast og borða saman, og oft er búið að ákveða með dags fyrirvara að rölta saman í kaffibolla í bænum daginn eftir.

Þá er gott að vita HVENÆR maður er að vinna og HVENÆR maður er laus. Því þetta þarf að kó-ordineita!

Það er sko ekki hlaupið að því núna skal ég segja ykkur. Þetta er ótrúlega mikið púsl að raða saman vöktum þegar tvö stórmót eru í gangi á einu sumri á lítilli deild, en á móti kemur er ekki beint eins og Ólympíuleikarnir læðist upp að okkur! Það ætti að vera hægt að skipuleggja svolítið fram í tímann. Maður myndi að minnsta kosti ætla það!

Ég væri ekki að stressa mig yfir þessu ef ég væri eins og hinir karlmennirnir sem vinna með mér. Þeir eru greinilega ekki með 7 manns bíðandi eftir svari frá sér hvort þeir komist í saumó eitt ákveðið kvöld í næstu viku. Eða hvenær þeir komist í matarboð í vikunni þar á eftir. Eða bara almennt hvort maður sé að vinna DAGINN EFTIR! Þeim virðist vera alveg sama um þetta blessaða vinnuplan.Þess vegna kem ég út eins og algjör frekja þegar ég er stanslaust að spyrja um vaktaplanið fyrir ágúst.

Mér finnst svosum ekki til mikils ætlast þegar kominn er 7. mánaðarins. Hvað þá þegar allsvakaleg vinnutörn fyrir alla á deildinni hefst 8. ágúst! Eiginlega finnst mér bara vera almenn mannréttindi að fá að vita með sæmilegum fyrirvara hvenær maður á mæta í vinnuna. Og mér finnst óþægilegt að halda vinum mínum í gíslingu með hvenær ég kemst í matarboð. Nú vil ég ekki hljóma eins og ég sé ómissandi, en ég meina, í góðum vinahópi munar svo sannarlega um hvern mann.

Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að flestar konur myndu verða brjálaðar á svona óskipulagi eins og hér viðgengst. Svona gengur bara ekki upp í okkar daglega félagslega lífi. En þetta virðist vera eitthvað “óþarfa stress” í mér hér á mínum vinnustað. Eitthvað svona “kellingastress”.

Urg.