Strandblak kvenna er ein vinsælasta íþróttagreinin á Ólympíuleikunum. Að minnsta kosti í áhorfi talið. Þetta vissu menn hér á sportinu fyrir 4 árum síðan, þegar þeir sýndu greinina í öllum “götum” í dagskránni. Bara tilbúið klippt til sýningar! (Mér skilst þó að þetta verði ekki gert á eins markvissan hátt í ár. Sorry boys.)
En nú er ég aldeilis hlessa.
Ég var nefnilega að frétta að það eru strangar reglur um keppnisbúning liðanna. Sko, í kvennaflokki, ekki karlaflokki.
Bikinibuxurnar sem konurnar klæðast mega ekki vera breiðari yfir mjöðm en sem nemur 6 cm.
“Nújá”, gætu sum ykkar hugsað, “ég vissi ekki að þetta hefði svona mikil áhrif á getu þeirra til að spila íþróttina!” En nei. Þetta hefur ekkert með getu að gera. Heldur hefur þetta bein áhrif á áhorfið! Ekki grín.
Því minni buxur, því meira áhorf.
Karlmenn eru í hólkvíðum buxum sem ná nánast niður á hné.
Ósanngjarnt, anyone? Asnalegt, anyone? Móðgandi, anyone?
Eða kannski bara gott og gilt? Þeim er nær að velja sér strandblak sem íþróttagrein? Þær vita út í hvað þær eru að fara?



Persónulega finnst mér til dæmis að knattspyrnu- og handboltaleikmenn í karladeildinni ættu að spila berir að ofan bara með númerið málað á bakið. Ég er miklu meiri kassakona en rumpakona þannig mér er skítsama hvernig stuttbuxurnar þeirra líta út.
já nákvæmlega, en strandblaksstrákarnir eru ekki einu sinni berir að ofan!! þeir eru í ermalausum bolum!!! svindl..
þetta er bara fyndið! mikið efni fyrir jafnréttiskvinnur og karla…alveg fáránlegt náttúrulega….en með strákana, ég er ekkert viss um að ég myndi horfa meira á þá ef að þeir ættu alllir að vera í mega þröngum og efnislitlum speedo’s…
bara úr að ofan með þá og þá eru allir sáttir! Mér finnst engan veginn nóg af berum karlmönnum í þessum heimi.
Hinsvegar er vafasamt að skikka konurnar til að leika í slíkum búningum þegar reglurnar eru ekki eins strangar fyrir karlana. Allavega eins gott að missa ekki úr æfingu þegar þú þarft að keppa í bikiníi á Ólympíuleikunum.
Gæti ekki verið meira sammála þér Jóa!! ÚR AÐ OFAN með karlmenn í fótbolta.. og alveg fleiri íþróttagreinum.. ég myndi pottþétt horfa meira!
ja, hérna. fáránlegar reglur. ertu með link á þær?