færsla fyrir Jóu

25 06 2008

Vegna fjölda áskorana (Jóu) ákvað ég að blogga. Enda hef ég ekkert betra að gera. Ég er nefnilega lasin heima. Ég hljóma eins og eftir fimmfalda verslunarmannahelgi með 50 sjóurum. Jább, ég er SVO rám. Ég vildi óska að ég væri rám af því að hafa náð mér í kvef við að velta mér upp úr dögginni. Það væri ógó kúl. En nei, ég var ekki að gera neitt svoleiðis. Hvorki fimmföld verslunarmannahelgi né jónsmessudögg.

Nei nei. 

-Sá bara íslenska kvennalandsliðið í fótbolta bursta Slóveníu í bestu sætunum á vellinum.

-Naut 17. júní úti og grillaði.

-Hélt skemmtilega útskriftarveislu. Takk allir fyrir mig!! wow u..

-Kíkti út á lífið með Jóu, Ívari bró og Gústa.

-Hitti fullt af Kópavogsskólafólki. Þar á meðal kíkti ég á flottustu gæs laugardagsins á Austurvelli, Hrefnu (sem var aðeins of hott í latexhjúkkubúningnum fyrir some men to handle).

-Uppgötvaði að það er almenningsgrill í Hljómskálagarðinum þegar ég fór í pulsupartý í gær til Sólrúnar.. meeeen hvað það er sniðugt..

-Klárað fyrstu Terry Pratchett bókina mína.

-Legið á stuttbuxum og hlýrabol út í garði.

-Séð nýfædda grísi á miðnæturopnun í Húsdýragarðinum.

-Borðað á Tapas (jömmí) (viðbót 28.júní: OG ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGA SKEMMTILEGT MEÐ SKEMMTILEGUSTU STELPUM Í HEIMI) og Brons (ekki eins jömmí, þó er víst verið að skipta um matseðil svo kannski maður gefi þessu annan séns)

-Fengið mér frosna margarítu á Tabasco’s. Örugglega ekkert mikið tequila í henni…

-Borgað 3.200 fyrir tvo White Russian á Apótekinu. OKUR! En jæja.. Supreme pizza á Hróa Hetti kostar 3.790 kr. OOOOOKUR! 

hmmm. Ekki er þessi færsla nein tímamótafærsla. Maður ætti kannski að snúa sér aftur að THS: A True Hollywood Story á E! um Kardashian fjölskylduna. Æsiæsiæsiæsispennandi.

Jóa, þessi færsla var fyrir þig ;)


Actions

Information

3 responses

25 06 2008
Jóa

hahaha. takk, varð bara að fá blogg við tölum jú svo lítið saman :) Þú verður að taka upp gítarinn og syngja its a heartake… bara svona í stíl við röddina

27 06 2008
Arnbjörg

flott færsla :) mér fannst samt vanta lýsingu á því hvað þér fannst ÓGÓ gaman á Tapas með skemmtilegu vinkonum þínum!!! og svo gleymdirðu frozen margarita á mexíkóska staðnum sem ég man ekki hvað heitir :)

28 06 2008
Lovísa

þessu hefur verið kippt í liðinn ;)

Skrá ummæli