Í dag er ég formlega komin með háskólamenntun. Er ekki nýi titillinn minn fínn?
Ég er að íhuga að setja þetta aftan við nafnið mitt í símaskrána. Mér finnst það svona við hæfi. Og svona “has a nice ring to it”. Lovísa Árnadóttir, bókmenntafræðingur *lesist upphátt*. Ekki spurning.
Skál fyrir mér!
Til hamingju með nýja fína titilinn þinn, það er svo fullorðins að vera komin með háskólapróf!
Til hammó! Þokkalega setja það í símaskrána (þó það sé ekki alveg eins ógeðslega kúl og Jón Jónsson “brautryðjandi”, hann sá um að ryðja flugbrautina á Húsavík á veturna…)
Til hamingju með titilinn! ég er sammála..þetta er ótrúlega fullorðins, eins og að sjóða kartöflur og eignast börn:)
til hamingju með áfangann…. svo stolt af þér. þá er bara að sigra heiminn!
Aftur til hamingju!!
Varst obbilega fín og sæt á stóra daginn
…Finnur er enn að taka upp pepperóní-rúllutertuna hahaha þarft endilega að lauma að mér uppskriftinni við tækifæri :Þ
-takk aftur fyrir okkur
Til hamingju aftur elskan mín! Þú varst sætust í útskriftinni!
Innilega til hamingju elskan mín. Knús frá mér til þín. Kreisí Kaupmannahafnarkveðjur
Jibbííí til hamingju!!!!!
Til hamingju með titilinn!!
Hey skvís, innilega til hamingju aftur. Það var frábært að geta fagnað með þér þessum stóra titli. Sammó með pepperóní dæmið, algjört jammí.
Ekki spörning að setja titilinn í símaskrána, getur meira að segja sett marga titla: bókmenntafræðingur/íþróttafréttamaður/flugfreyja. Það er svo ofurkonulegt að vera með skástrik.
innilega til hamingju með BAið:) (eða var það MAið?)
jæææææææææææja. blogga kannski?