júró-Idu-helgi búin

26 05 2008

Jæja, þá er þessi helgi afstaðin. Ógó skemmtileg bara. Ida og Dan voru rosa fín, afslöppuð og ákveðin að skemmta sér vel. Það var þeyst um allt og ég er alveg búin núna… Núna er bara að pakka því ég er að fara til Tenerife !! jibbíííííí!!! :)

Eurovision – partýið var frábært, mikið stuðlið saman komið og árleg nördaheit fengu að njóta sín yfir trylltum dansi við gömul sem ný Eurovision lög. Eurobandið sannaði fyrir öllum efasemdarmönnum að þarna áttu þau heima, maður átti bara nett Selma-1999-móment yfir að sjá þau á sviðinu :)

Sigurlagið er samt þvílíkur hryllingur og atkvæðagreiðslan var hneyskli. Enginn í partýinu var nálægt úrslitum og aðeins 2 af 20 höfðu Rússland á topp 5. Segir allt sem segja þarf. Og mér finnast atkvæðagreiðslugreiningarnar ansi athyglisverðar – ef atkvæði Austur-Evrópulandanna eru tekin í burtu, þá hefði Rússland verið í 5. sæti. Ísland hefði verið í 7. sæti. Helvíti hefði það nú verið flott.

Það sem stendur samt uppúr er að Svíagrýlan var val dómnefndar upp úr undanúrslitunum!!! MÚAHAHHAHAHAA.. og 18. sæti í úrslitum MÚAHAHHAHAHAHA.. ef ég á að segja alveg eins og er, þá held ég að það sé bara vegna útlits hennar.. ég meina, þvílíka plastfríkið, maður sjokkerast allur við að sjá hana á sviðinu og hún er bara fráhrindandi. Þvílíkur útlitsmunur frá 1999 og 2008!!!

Jæja – best að fara að pakka.


Actions

Information

3 responses

26 05 2008
Jóhanna

mér fannst í alvöru mesi sigurinn liggja í tapi svíþjóð.
en það kom mér rosalega á óvart að sjá noreg svona ofarlega… var bara flabbergasted.
þetta er ekkert nema klíkuskapur. Kannski mun það verða þannig að það er eitt og eitt lag, einu sinni á fimm eða tíu ára fresti sem er svo ógeðslega fokking gott að það vinnur óháð landfræðilegri legu, annars verður þetta mest austan megi. Eru líka ekki allir að hóta að hætta?

26 05 2008
lou

Jú en skv esctoday.com ætlar BBC ekki að hætta að taka þátt, því þeir fá svo góð ratings út á keppnina.. greinilega slétt sama um að senda gott lag, vilja bara að fólk horfi. En fólk nottla hættir smám saman að horfa þegar það er enginn trúverðugleiki í þessu, svo eitthvað þarf að gera – Dima Bilan var ömurlegur og þess vegna er svona augljóst að það var einhvers konar “maðkur í mysunni” að þessu sinni. Enginn getur þrætt fyrir að Serbía vann í fyrra með einfaldlega besta laginu.

27 05 2008
Inga Lilja

bíddu var Kafarinn minn ekki nokkuð nálægt úrslitunum?? Eða var það bara fyrir að geta lag 1 & 2 rétt :-)

Skrá ummæli