… en varla svona lítið!!
Sendi fyrirspurn á B&B í Buenos Aires, þar sem kemur fram að ég er frá Íslandi. Ég sprakk úr hlátri þegar ég las svarið frá þeim:
“Best regards, waiting for your comments!!!!!!
Juan Jose
P.D. Do you know SIGRUN????????”
HAHAHHAHAHAH endalaust fyndið – svo þekki ég hana alveg örugglega! hehe..
Við Jóa erum loksins komnar með flugmiðana okkar í hendurnar eftir 25 daga drama (það má lesa alla söguna um stóra-farmiðamálið hér) og þar með eru allir flugmiðar frágengnir. Nú er bara að bóka gistingar, og það er smá flókið, því Buenos Aires og Rio de Janeiro eru stórar borgir og margt í boði í mismunandi hverfum. En það er sannarlega ekki leiðinlegt að skoða þetta á netinu
Hehe, algjör snilld.
Ég þekki reyndar 2 Sigrúnar, ætli þetta sé nokkuð önnur hvor þeirra?
skemmtilegt! (og ég þekki nokkrar líka)