Kláraði síðasta prófið mitt í dag. Og þá meina ég það bókstaflega, SÍÐASTA prófið!! Að minnsta kosti á mínum B.A. ferli!! Jibbííí!!!!! Það styttist óðum í fína fína titilinn minn.
Hlakka endalaust til að lesa allar bækurnar sem bíða mín í hillunni og skipuleggja Suður-Ameríkuferð samviskubitslaust!!
Ég táraðist næstum við þetta. Takk Jóa mín
Gleðilegt sumar allir!
Loksins búin
Lovísa Árnadóttir, bókmenntafræðingur, fagnaði í gær síðasta prófinu sínu á BA ferlinum “já ég bara alveg gekt kláraði þetta,” sagði Lovísa þegar Bjórtíðindin náðu af henni tali í dag “ég er alveg ógisslega happí og ætla að drekka alveg fáránlega mikið af bjór í kvöld og vera alveg á sneplunum og bara á nösunum og öllu bara ha?” sagði Lovísa og hló eins og smástelpa á ímyndunarfylleríi.
Fyrir hönd bjórtíðinda viljum við óska Lóvu showgirl frá Copacabana til hammó með BA-ó.
Hæ Lovísa,
Innilega til hamingju með próflokin ! Get ímyndað mér að þú sért spennt að geta helt þér í skipulagningu á flottu útskriftarferðinni þinni.
Hjalti kláraði sín í fyrradag og er einmitt frekar rámur eftir partístand með bekkjarfélögum sínum í gær.
Kveðja
Silja
Til hamingju Lovísa mín. Núna geturu farið að sinna næsta verkefni EUROVISION næstu helgi. Hugsa til þín þá.