euroband æfing

13 05 2008

Jæja. Fyrsta æfingin afstaðin. Varúð þeir sem vilja ekki sjá atriðið fyrr en 22. maí – ekki skoða myndböndin við þennan póst!

Er hvergi hægt að fá dansandi bakraddir?? Ég bara spyr. Sjáum til dæmis sænsku beygluna í samanburði og atriðið hennar, (Charlotte ekki svo sterk í enskunni ”you’re washing eurovision.tv hehehehe) en þar syngja dansararnir, já eða dansa bakraddirnar :)   Annars er sænska lagið óþolandi týpískt og líklegt til árangurs. Fyndið þetta miðaldra-kvenna syndróm í sænsku atriðunum - þær Carola virðast nokkuð svipaðar, strekktar, grannar, klæða sig eins og þær séu tvítugar og með vindvélina stillta á 100 metra á sekúndu.. og enda lagið eins, kýla-upp-í-loftið í anda Rocky. Skotheld formúla sem virkar ár eftir ár. Íslendingar eru alltaf svo góðir og gefa Svíum fullt af stigum, en ég hef tekið eftir því að Svíar eru nískir á stig til okkar…

ok nóg af þessum Svía-útúrdúr :)

Mér finnst bakraddirnar í atriðinu okkar vera rosa flottar og rétt ákvörðun að skilja dansarana eftir heima, þar sem sporin voru hvort sem er ekkert sérstök og dansararnir ósamtaka… og ákveðin sérstaða í því að Regína og Friðrik fái að njóta sín á sviðinu, enda er annað hvert atriði með hóp af dönsurum með.. En hvað er málið með þessi ógeðslegu spor þeirra Friðriks og Regínu??? Hefði ekki mátt kippa þeim fram í nútímann? Labba-fram-og-smella-fingrum-útí-loftið-sporið mátti alveg missa sín – þetta er jú árið 2008. Eins og Jóa bendir á, gæti þetta verið homage til Eitt lag enn árið 1990.

Atriðið er mun flottara þegar maður sér það í myndvinnslu, greinilega hefur einhver tekið upp æfinguna af skjá í höllinni svo myndvinnslan sjáist :)  Þá svínvirkar atriðið og þá er ég ánægð :)

allavega – pínu vonbrigði með sporin, en lagið er vel sungið, það er nú ekki spurning. Og djöfull er Regína orðin flott!!

Hvað finnst ykkur um atriðið???

 

Svo er bara fyndið að sjá desperasjónina hjá Rússum! Mæta með Plushenko skautakonung á svæðið!!!! Eitt stykki Ólympíumeistari takk fyrir hahahahahhaa.. ég skil ekki að þetta lag eigi að gera góða hluti, finnst Dima Bilan glataður í þessu lagi og línan “impoooossííííbeeeel” alveg smýgur í gegnum merg og bein hehehehe.. Já spurning um að fá Eið Smára í okkar atriði eins og Gústi stakk upp á.. sparka nokkrum boltum í mark á sviðinu eða eitthvað..

Er hvergi hægt að horfa á keppnina á BBC hér heima??? Búin að hringja bæði í Vodafone og Símann en hvorugt er með BBC1 í sínum sjónvarpsþjónustum.. mig langar svoooo að hlusta á Terry Wogan lýsa keppninni.. hann er svo ógeðslega fyndinn.. tékkiði til dæmis á þessu snilldar recap frá 2006 HHAHAHAHAH.. yndislega politically incorrect :) “if they go for eyebrows, this it it!” hahahhaha


Actions

Information

2 responses

13 05 2008
Jóhanna

ég vil meira ÚMF!! Erum við eina landið sem ætlum að vera í kjól niður fyrir hné?

14 05 2008
Inga Lilja

Eitt Lag Enn var einmitt það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég horfði á æfinguna!!! Vibba fyndið…
Charlotta ætti nú kannski aðeins að slaka á í lýtaaðgerðunum – varla að maður þekki hana frá því 1999 – dísös. Mér finnst sænska lagið ööööömurlegt og vona að við gefum því ekki meira en tvö stig….
en er okkar forkeppni nokkuð sama dag og Meistaradeildin???

Skrá ummæli