Óneeeeiii here we go again.
Nágrannarnir eru byrjaðir aftur í karaoke! Glymur alveg niður til mín!
Gafst upp eftir þeirra útgáfur af Footsteps on the Dancefloor og Power of Love með Frankie Goes To Hollywood og gróf upp gamla próflestrartónlist til að setja á fóninn til að útiloka (ó)hljóðin - Enya er komin í græjurnar. Ég get nefnilega ekki haft neitt með sungnum texta án þess að syngja með (ógó erfitt stundum að labba úti með iPod vegna þessa, konstant meðvituð um að syngja ekki með) og þá læri ég auðvitað ekkert.
Mér finnst best samt að læra í þögn – og bíð spennt eftir því að karaokediskurinn verði búinn hér uppi.
Það er engan veginn alltaf stund og staður fyrir karaoke. Sérstaklega ekki heimakaraoke þegar maður býr í fjölbýlishúsi.
Það getur verið gott þegar vinkonur manns nenna að kippa með sér Mac dóti frá Ameríku – Takk takk takk Íris D mín yndislega. Munar sko um minna – það munar 100% í verði á uppáhalds snyrtivörunum úti og hér heima. Svo ég tímdi að kaupa mér alvöru púðurbursta!! annað voru nauðsynjar. Nema annar glossinn
Sjiiiitt hvað ég hafði ekki efni á þessu, en maður þarf svona smá gleðigjafa þegar maður er að læra undir mest useless próf í öllum heiminum. Erþaggi???? *réttlæti*réttlæti*
the power of loooooooooooooooove, a force from abooooohooove, cleaning my soul, flame on burn desire, love! … with tongues of fire, purge the soul, make love …. your gooooaaaaal.
Þarf ekki að réttlæta Mac… mac er og verður ávallt yfir réttlætingar hafið.
úpps ætli nágrannar mínir hafi hugsað þetta þegar Fóstursonurinn var búinn að fá að syngja Lynrd Skynrd klassíkina Sweet Home Alabama í Singstar svona um 15 sinnum í röð eitthvað miðvikudagskveldið???
Já líklegast…
Ég rétti konuni í búðinni listann ykkar jóu og hún verður eitthvað skrýtin á svipinn….
Ég segi: No it´s is not all for me, it´s for my friends. Hún segir: well at least they have good taste!
hún hefur ekki spurt “are you from Iceland?” ? ég fékk þá spurningu einu sinni þegar ég rétti henni lista. Hún alveg alvön íslensku verslunaræði.