Gærdagurinn var yndislegur.
Það var farið út að borða á Austur-Indía fjelaginu til að halda upp á offisíalt 6 mánaða para-afmæli. Tíhí. Geggjaður matur og góð þjónusta og yndisleg kvöldstund.
Hvað er samt málið með hitann þar inni? heheheh.. Svo er maður að borða sterkan mat og í lokin er maður bara búinn að rífa sig úr öllum fötunum og líður samt eins og í saunu
Það var eitthvað svo mikil heimsborgarstemning yfir Reykjavík í gærkvöldi. Það var allt troðið í bænum, enda gott veður og auk þess fimmtudagur, en fimmtudagar fara ört stækkandi sem djammdagur. Við áttum bara í erfiðleikum með að finna stað til að taka einn svona desert-drykk á. Það var bara allt stappað af fólki. Enduðum þó á Café París í bestu sætum hússins og horfðum á mannlífið fyrir utan gluggann. Svona á Reykjavík að vera! Og er vonandi að þróast í þessa átt for good! (Þjónustan á París er alveg jafn léleg samt, hvort sem það er mikið eða lítið að gera
magnað).
Hefði samt mátt vera duglegri að læra yfir daginn – þá væri þetta sirka dæmi um fullkominn dag
Vil óska Láru Guðrúnu innilega til hamingju með nýju búðina á Hverfisgötunni, Moods of Norway. Ógó flott! Knús..
takk æðislega fyrir! Það var ekkert smá gaman að sjá þig og sæta manninn sem hefur verið mér dulin síðustu sex mánuði;)