ég sé að Mark Ronson er að verða Timbaland Englands – allt sem maðurinn kemur nálægt verður að hitti. Ég er alveg ógissla hrifin af Valerie auðvitað feat Amy Winehouse, eitt besta cover ever, þið getið borið saman upprunalegu útgáfuna og ábreiðuna hér, orginallinn minnir mig alveg óendanlega á Leeds. En já, Ronson, ég er núna soldið skotin í lagi sem hann pródúserar með Adele, Cold Shoulder:
Annað lag í miklu uppáhaldi þessa dagana, af júrópoppsættum, er remix af lagi hinnar sænsku Robyn, Who’s that girl. Tær snilld og erfitt að dilla sér ekki.
Mæli svo eindregið með nýju plötu The Kooks, Konk. Fyrsta platan var frábær, og mér finnst sú nýja ekki síðri. Búin að hlusta svooo mikið á hana og finnst æði að setja þá í botn og syngja með. Læt videoið af þeirra fyrstu smáskífu af plötunni fylgja.
Verð svo eiginlega að viðurkenna að mér finnst See You Again með Miley litlu Cyrus alveg ógeðslega skemmtilegt
Hressilegt popplag, en erfitt að viðurkenna fyrir sjálfum sér að maður nái í lag með 15 ára amerískri stórstjörnu.. hehehe.. En iss, ég er nú ekki þjökuð af tónlistarsnobbi svo ég næ í það sem mér finnst skemmtilegt
Hæ Lovísa,
Mér leist svo vel á lagið með Adele að ég hlustaði á fleiri lög með henni á netinu og endaði svo með að kaupa diskinn hennar á itunes.
Takk fyrir góða ábendingu ! og endilega koma með fleiri !!
Kveðja frá U.S & A
Silja