B.A.-ritgerð, check!

2 05 2008

Jæja. Ég afsaka bloggþurrðina, en fyrir henni liggja gildar ástæður. Í fyrsta lagi var ég að reyna að græða pening með því að taka afleysingavaktir (12 daga í röð sirka) og svo að leggja lokahönd á þessa blessuðu ritgerð.

ÉG ER SEMSAGT BÚIN AÐ SKILA B.A. RITGERÐINNI!! jibbbíííííí!! Leiðbeinandinn minn óskaði mér innilega til hamingju með háskólaprófið. Mér hálfbrá! Bara heyrðu jaaaá svolítið til í þessu, ég fer amk varla að klúðra þessu gjörsamlega núna á lokasprettinum, á 2 próf eftir. En ég bíð aðeins með að fagna gráðunni – það verður gert 14. júní næstkomandi :)

Vil þakka Heiðu fyrir að vekja mig kl. 11 í morgun, að binda þetta inn fyrir mig og þannig leggja sitt af mörkum að mér tókst að skila þessu á hádegi!!! stórt knús til hennar :)

Eníveis.. ég veit að þúsundir manna hafa skilað svona ritgerð og þetta er þannig séð “ekkert merkilegt”, en þetta er smá merkilegt fyrir mig – ég hélt að ritgerðin myndi standa í mér og að ég gæti ekki skipulagt mig og þetta yrði ægilega erfitt og ég veit ekki hvað og hvað, svo ég er að koma sjálfri mér á óvart og sanna að ég geti víst skrifað svona ritgerð og HAFT GAMAN AÐ. Held að það hafi komið mest af öllu á óvart – þetta var ekkert mál. Bara eiginlega svakalega gaman. Kannski ég er ég svona sækó :)

Allavega – ef þið viljið lesa um ásakanir um ofbeldi og kvenfyrirlitningu í barnabókum Roalds Dahl, þá er hægt að nálgast lesefni hjá mér ;) ho ho ho..


Actions

Information

12 responses

2 05 2008
Inga Lilja

ég held reyndar að þetta sé hin áhugaverðasta lesning…. öfugt við óskaplega margar BA/BS ritgerðir sem ég hef kíkt á… spurning að gera úr þessu greinar til að birta í mogganum ;-)
til lukku með þetta!

2 05 2008
silja

Til lukku með ritgerðarlokin Lovísa !

Kveðja
Silja

2 05 2008
lou

takk takk :)
Inga, eigum við ekki bara að setja stefnuna á það? :)

2 05 2008
Lára Guðrún

Til hamingju!! Mér finnst þetta alveg stórmerkilegur áfangi og setur aldeilis pressu á mig að full-BéAa þríeykið ógurlega!

Til hamingju, til hamingju!!

2 05 2008
Jóhanna

til hammó með ba-ó. Þú ert hetja og fáránlega dugleg. Gef þér stóóóóóóóóran bjór í skilagjöf. Stubbaknús

3 05 2008
Íris Hauksdóttir

Til hamingju!!!
-ekkert smá (eða það fannst mér hósthóst)
Já smá pressa komin á óléttu konuna :Þ
…hún getur samt blastað óléttuspjaldinu eins og engin sé morgundagurinn…
En hei ég vil lesa!!
Mátt *endilega* senda mér meistaraverkið á irishauksdottir@gmail.com
Annars bara knús til þín, í poka sem ekki má loka, frá lúðaðanum í norskalandinu ;)

3 05 2008
lou

barn vs. BA-ritgerð.. hmmmm..
;)
iss þú tekur þetta með trompi núna – ritgerðina svo síðar :)

4 05 2008
baun

sko til! gott hjá þér, það er svo góð tilfinning að klára svona dæmi:)

4 05 2008
Inga Lilja

jú skrifa greinar í Moggann – það er svo svakalega menningarlegt eitthvað….lesbókin! Ég væri amk til að lesa þær…..

7 05 2008
Íris

Til hamingju elsku lou! Við skálum fyrir þessu í sumar, svona einu sinni eða tvisvar :)

7 05 2008
Lára

Til hamingju!!!! :-) Ritgerðarefnið hljómar mjög spennandi!

7 05 2008
Arnbjörg

Til hamingju líka hér esska! ;) Stórum áfanga lokið. Mjög ánægð með þig! xxx

Skrá ummæli