Í gær átti Ívar litli bróðir afmæli.
Ég veit svosum ekki hvort það er við hæfi að kalla hann litlabróður, þar sem maðurinn er tæpir tveir metrar á hæð og varð 26 ára í gær. Samt kannski lítill í anda, þar sem hann fékk að ráða matseðlinum hjá mömmu&pabba í gær og bað um skúffuköku í eftirrétt. Sat svo hæstánægður (ásamt öðrum bræðrum) með kökuna sína og mjólkurglasið. Alveg eins og fimm ára.
Hvað getur maður sagt? Boys will be boys
Til hamingju brósi
Og bara af því að við erum svo sæt – hér er mynd af okkur á góðri stundu

hehe takk. Það jafnast nefnilega ekkert á við skúffukökurnar hennar mömmu….
Jii hvað þið eruð mikil rassgöt, en af hverju ertu ekki lengur með þetta hair-do?
bíddu bíddu bíddu … við þurfum að ræða aðeins um þessar krullur!
Til hammó með ammó Ívar
Hahaha…til hamingju líka með að vera svona myndarleg systkini…
Mig langar í skúffuköku núna…
Og ertu farin að safna lárum?
já.. krullurnar voru óvart klipptar af um fimm ára aldurinn eða svo og þær komu bara aldrei aftur.. amma er ennþá að kenna sjálfri sér um, en hún sendi mig til klippikonunnar í leyfisleysi og fylgdist svo ekkert með hehehehe… ætti ég semsagt að leggja sléttujárninu og sjá hvað gerist?
úff já – Lárurnar í mínu lífi orðnar fullmargar
reyndar hafiði allar millinöfn, svo þetta bjargast til dæmis í símanum mínum hehehehe..
Já takk fyrir það Jóa.
Já mig langar líka í meiri skúffuköku…… Get ekki beðið í ár í viðbót.
hei hver er hin klára? ég verð bara Lára sára
Ekki vera Sára Lára, við getum báðar verið Klára Lára!