berar að ofan

1 04 2008

hahhahaha… skellti upp úr við þetta augljósa aprílgabb – je right að ég hlaupi til og skelli mér berbrjósta í sund til að mótmæla hlutvervingu kvenna 1.apríl ! Karlmenn, ekki hlaupa til og bruna í Vesturbæjarlaugina og vonast til að sjá brjóst í stórum stíl, þar sem ég stórefast um að nokkur kona falli fyrir þessu!

Að minnsta kosti er þetta heimskulegasta tímasetning sem um getur á svona mótmælum ef þetta er ekki aprílgabb híhíhí..

Verð þó að segja að Elko veitir Femínistafélaginu harða samkeppni í fyndnasta aprílgabbinu í ár. Allir að drífa sig í Elkó í dag og versla þessa stórkostlegu megrunarvél á spottprís, aðeins 899.995!! HAHAHHAAH..

Alltaf gaman að skoða aprílgöbbin.. Svo er spurning hvernig þetta dreifist, ég er þegar búin að sjá að minnsta kosti tvær fréttir á mbl.is sem eru aprílgöbb – má vera alveg endalaust? Kemur hver deild með aprílgabb? Eða hvað? Eru allar fréttir dagsins kannski bara uppspuni? Matvælaverðið hækkaði örugglega ekkert og lán heimilana hafa ekki hækkað úr öllu valdi..

Og hamingjuóskir til Bjarka hennar Gurrýjar sem á afmæli í dag – hann vildi örugglega óska þess að sú staðreynd að hann er kominn á fertugsaldur væri aprílgabb.


Actions

Information

One response

2 04 2008
Bjarki

Why you little!!!!
flest er fertugum fært!
takk samt :)

Skrá ummæli