heheh..
Ég var að kaupa mér bók á netinu.. þurfti hana fyrir ritgerðina mína.. keypti hana semsagt notaða (ódýrari), fyrrverandi bókasafnsbók. Var að fá hana í hendurnar.. og viti menn.. bókin er úr bókasafni University of Leeds
Af öllum bókasöfnum í Englandi og af öllum sem panta notaðar bækur þá rataði þessi tiltekna bók í mínar hendur! En gaman!
(Skólinn er jú á myndinni hér að ofan.. ekki ljótur skóli)..
Um daginn hitti ég líka gamlan vinnufélaga úti í búð. Við ræddum sniðugt mastersnám, sem ekki er kennt hér á landi.. og vinnufélaginn sagði “Ég veit að þetta er kennt við háskólann í Leeds”!! og ég bara “já einmitt!!!! var að skoða það um daginn!!”
Á árshátíðinni á laugardag hitti ég vinnufélaga Gústa, en hann var frá litlum bæ rétt fyrir utan Leeds, Whitby. Semsagt, frá Yorkshire. Talaði með almennilegum Yorkshire hreim og ég fékk bara algjört flassbakk. Hann virtist nú greina smá Yorkshire keim af mínum hreim því hann sagði að honum liði eins og hann væri kominn heim.
It’s a sign!
Eða hvað?
Er ég bara komin með Englandsfiðringinn sem gerir reglulega vart við sig? Eða alvarlega farin að hugsa hvort ég taki mastersnám heima eða úti (og þá kemur Norður-England sterkt inn)… Æi ætli maður verði ekki bara að fara að drulla sér í heimsókn up north, hef ekki komið síðan um jólin 2006, ekki nógu gott!
Gústi vill fara til Nýja-Sjálands… Það er jú ögn lengra í burtu..

Bannað að fara í burtu yfir höfuð.. Mastersnám á Íslandi takk
Arnbjörg eigingjarna
ég tek undir með Arnbjörgu. Þú ferð ekki neitt. Mig varðar þó ekki um ferðir Gústa … svo lengi sem hann sendir póskort.
mmmm…. Yorkshirepudding
eriggi fullmikið að fara til nýja sjálands kona! reyndar væri ég ógessla til í fara þangað…on second thought, þú mátt fara ef þú verður í íbúð með herbergi fyrir mig, öldunginn hann manninn minn og formennina litlu;) ok?