…eins og óð fluga. Eða ég vona það að minnsta kosti! Því valkvíðasjúklingurinn ég keypti sér hjól á dögunum!!!! Það var ekki auðvelt ónei. En þetta hafðist og ég er ógó ánægð og hlakka geðveikt til að vera aðalpæjan í bænum, að skottast um á sæta hjólinu mínu með blóm þrædd í körfuna
alveg búin að fara í hjólatúra þótt það vanti herslumun upp á vorið, og þetta lofar svo sannarlega góðu.
Svo var ég að fatta að það eru um 3 vikur eftir af skólanum! Þrjár vikur eftir af grunnháskólanáminu! Ja hérna. Fékk B.A.-uppkastið mitt tilbaka í gær með kommentum og nú verður bara allt sett í gang aftur og klárað í hvelli! Leiðbeinandinn tók sérstaklega fram að hann hrósi bara í lokin og ég ætti ekki að panikka yfir kommentunum heheheh.. hjúkk
Fínt að hann sé bara harður svo maður læri þetta almennilega og það skilar sér vonandi í betri ritgerð og hærri einkunn!!
Ársó í kvöld. Hjá kæró. Hann hætti reyndar á vinnustaðnum í gær en þá bara er stefnt á að go out with style – við verðum bara fulla parið að gera skandala heheheh.. En hamingjuóskir til hans, hann er núna sjálfstætt starfandi á eigin teiknistofu!! Atta boy!
Nýleg ummæli