Jibbííí var að fá ógó góðar fréttir!! Enn einn útlendingurinn kemur að heimsækja mig til Íslands – að þessu sinni ætlar Tanya hin kanadíska að mæta á Klakann
:) Ég kynntist Tönyu á skrifstofunni fyrir erlenda stúdenta í skólanum í Leeds, við lentum óvart saman í hóp þar sem eitthvað ægilegt skráningarferli var útskýrt fyrir okkur heheheh.. svo bara skiptumst við á númerum og ég bauð henni svo í partý. Í partýinu ákváðum við svo að fara saman til Amsterdam og fórum í vikunni á eftir og bókuðum ferð
Magnað, að hitta einhvern eiginlega einu sinni og fara saman í helgarferð!! Frekar sjeikí! En þetta gekk vonum framar og ferðin var frábær!! Hægt er að lesa um ferðina hér og hér og myndir eru hér.
Hún verður hér fyrstu helgina í september og ég er strax farin að hlakka til ! jibbíííí!

Nýleg ummæli