Svona eiga páskar að vera…

26 03 2008

páskarnir eru búnir að vera gersamlega fullkomnir! Þeir reyndar hófust ekkert í of mikilli gleði þar sem að lokasýning á La Traviata var á miðvikudeginum fyrir Skírdag og þar var veeeeel tekið á því. Einhvernvegin hvarflaði það ekki að mér það kvöld að það væri ekki sniðugt að blanda saman russian cocain skotum, ópal skotum, freyðivíni, rauðvíni og bjór á frekar tóman maga…verandi ekki búin að detta í það nema einu sinni síðasta árið. Nei, mér fannst þetta alveg upplagt. Reyndar skemmti ég mér mjög vel þangað til ég vaknaði daginn eftir, því þá fékk ég í fyrsta skipti að upplifa almennilega þynku….eitthvað sem að ég veit að gleður marga að heyra, marga sem fannst ekki sniðugt hér í den að vera eitur hress a leiðinni út að skokka morguninn eftir massa djamm. Svo til að gera þynkuna ennþá ánægjulegri þá var ég ekki búin að gefa síðan snemma kvöldið áður. Áái!! dolly parton hvað!!?

En ég lifði þessa fyrstu þynku af…með naumindum, og hafði það líka af að mæta í skírn hjá henni Ragnheiði Helgu Víkingsdóttur og syngja meira að segja! huh, geri aðrir betur! Ég efast hinsvegar stórlega um að ég hafi verið ómissandi hlekkur í sópraninum þennan daginn. En ég mætti og það er aðalmálið!

Núna erum við familían hinsvegar komin í bústað á flúðum og ætlum að liggja í leti hér í viku! Ógessla næs!! sérstaklega þar sem að bústaðurinn er töluvert stærri en íbúðin okkar, er með uppþvottavél, heitan pott og bjór í ískápnum! Það var líka súkkulaði hér en eg er búin að éta það allt. Svo verður reyndar allt vitlaust á föstudaginn þegar stórfamilían mömmu megin kemur og fyllir þennan og næstu 2 bústaði. Þá verður sko etið drukkið og spilað. En akkúra núna er sjaldgæf stund, ég er EIN að dóla mér! allir eru sofandi og ég veit varla hvað ég á að gera….nei, lýg því, nýt þessa út í ystu og er að byrja á bók nr.2.

Lengi lifi páskarnir!


Actions

Information

4 responses

26 03 2008
Höski

Hehehe, það var kominn tími til…

27 03 2008
lou

get ekki sagt að ég hafi vorkennt þér mikið í þynnkunni hehehehe fann hvernig áralangt “I TOLD YOU SO” braust um innan í mér ;) nei nei þú áttir ægilega bágt..

en snilld að þið hafið það svona gott!!! I wish að ég væri í bústað..

28 03 2008
Arnbjörg

Vá hvað mér fannst þetta gott á þig að upplifa LOKSINS almennilega þynnku!! múhúhahaha.. þrátt fyrir að það lenti á skírnardegi dóttur minnar.. ehhehe þá var bara gaman að horfa á eina glæra í sópraninum.. ;)
vá öfunda þig massíft af þessum bústað… mmm næs!

30 03 2008
Gurrý

æji..ég hat’ykkur öll…megi þið upplifa margar vondar þynkur!:)

Skrá ummæli