Ahhhh. Var að skila inn fyrsta uppkasti að B.A.- ritgerðinni minni. Það verður ágætt að taka nokkurra daga hlé á pælingunum því ég er orðin gjörsamlega heilaþvegin og er að missa mig í þessu 
Það hefur kannski komið mest á óvart, hvað mér finnst þetta alveg brjálæðislega skemmtilegt. Ég var svo búin að ákveða að ritgerðarskrifin væru kvöl og pína! Það sýnir kannski hvað ég hef mikinn áhuga á viðfangsefninu… og leiðbeinandinn hjálpar líka svo til með því að vera áhugasamur og veita mikinn innblástur. Hann lagði áherslu á að ég myndi skrifa skemmtilega fræðigrein, svo það er nákvæmlega það sem ég er að gera. Að skrifa grein sem ÉG myndi lesa og hafa gaman að!
Núna skyndilega er ég í fyrsta sinn farin að sjá mastersnám í hillingum, því þar er maður í svona verkefnum á fullu. Ég er alveg að finna mig í þessu!
Jibbí!! Mastersritgerðin sjálf hafði hingað til eiginlega fælt mig frá og ég gat ekki hugsað mér að fara strax í námið að minnsta kosti. Núna er þetta að breytast! Hmmm… þarf að skoða þetta vel..
Nú er bara að vona að ég fái ekki uppkastið í hausinn með kommentunum: “Oj. Ömurlegt. Byrjaðu upp á nýtt!”…. jæks….
Best að fara að gera smá páskatiltekt. Hér er allt í rúst, bækur út um ALLT..
P.S. Ógó stolt af Viktori brósa og hljómsveitinni Hjaltalín, sem fékk tvenn verðlaun á Íslensku tónlistarverðlaununum í gær !
DRÍFÐU ÞIG ÚT AÐ DJAMMA!
Gleðilega páska dúllan mín – gott að heyra að ritgerðin gengur vel!
Til haaaaamingju
Njóttu frísins því þá verður þetta ennþá skemmtilegra þegar þú hendir þér í það aftur.
Gleðilega páska sætilíus
knús
Hulda