vúhú! Eftir að hafa verið í joggaranum alla vikuna með með hálsbólgu og kvef og drukkið te í lítravís, þá bara hljóp ægilegt vor í mig í dag. Setti á mig maskara og allt!! Ekki einu sinni viðbjóðslega hryllingsmyndin með hrottalegu nauðgunarsenunum sem ég horfði á í skólanum í morgun kom í veg fyrir góða skapið!! Ætli það hafi ekki verið helst þetta ægifagra veður sem “voraði” mig svona upp? Skellti mér með Kristínu í labbitúr og kaffisopa. Yndislegt. Hef ekki séð hana lengi. Svona fara B.A. ritgerðarskrifin með mann.
Svo keypti ég mér svo vor-legan disk um daginn. Ég er kolfallin fyrir Duffy. Lagið Mercy, sem situr núna á toppi breska smáskífulistans, sönglar í höfðinu á mér allan liðlangan daginn. Þvílíkt stuðlag og þvílík gleði. Langar að syngja í hárbursta þegar ég heyri það. Oh, ætla að skella því á fóninn og setja í botn. Því það er jú svo mikið vor
Skelli inn myndbandinu til gamans. Þetta er hún Duffy. Amy Winehouse meets Lulu. Hækkið í botn.
Mæli líka með tveimur öðrum lögum á þessum lista
Þau í danska stuðbandinu Alphabeat eru þarna með übervorlegt lag, Fascination. Það er svo hresst, að Jóa orðaði það þannig að ef þau væru hressari myndu þau kúka sápukúlum. Naglinn á höfuðið. Hrikalega skemmtilegt lag!! Og óþolandi danski hreimurinn ekki áberandi í þessu lagi, amk ekki miðað við önnur lög hljómsveitarinnar!! hehe.. Svo er skemmtilegt lagið með honum Taio Cruz, Come On Girl. Bara svona píkupopp
(getur svosum verið að þetta sé löngu komið í spilun hér heima, þar sem þetta er jú ógó amerískt lag, en ég veit lítið um það þar sem ég hlusta aldrei á útvarp hér heima og fylgist bara með tónlistarsölu í UK heheh.. svo ef ég er ógó eftirá, þá bara so be it heheh) Getið smellt á linkana til að hlusta! Duffy sú eina sem fær vídjó á síðuna þar sem hún er í miklu uppáhaldi þessa dagana!
Gleðilegan föstudag!
já það er að koma vor mar! ekki spurning, og því skal skálað í öl í kvöld!…en já, duffy er vibba flott! mér finnst hún samt vera pinku amy winhouse koppí, smá minna röff ..þarf samt alls ekki að vera að hún sé að stæla hana, kannski bara hennar bad luck að koma á eftir henni
já held það sé meira þannig. Reyndar er hún extra amy winehouse-leg í þessu lagi, mér finnst önnur lög á plötunni ekki alveg eins áberandi lík henni..
þú skálar fyrir mér essga.
Shitt hvað þú ert með góðan tónlistarsmekk kona! Spurning hvort þetta tengist eitthvað þeirri gæfu að vera fædd 07.07?