Jess, núna má ég detta í það með leyfi sænska manneldisráðsins! reyndar alveg mjög furðuleg frétt… “
Samkvæmt nýju ráðgjöfinni eiga konur með barn á brjósti að geta drukkið eitt til tvö vínglös einu sinni til tvisvar í viku” og hvað, er þá allt í lagi núna að drekka tvö rauðvínsglös og gefa svo beint á eftir, bara ef það er tvisvar í viku? hefði haldið að magn vs. tími til næstu gjafar væri aðal málið hérna…Sorry boring boob talking, en þessa dagana er ég mikil áhugamanneskja (atvinnumanneskja ?) um brjóstagjöf…
Ég las einmitt þessa frétt og varð voða glöð..fór beint ískápinn og þambaði kippu af bjór!! ehehe.. nei ekki alveg! Bíð eftir að eitthvað svona komi frá landlæknisembættinu hér á landi!
já það nottla ma alveg drekka með brjóstagjöf, en þú verður bara að láta nógu langan tíma líða þangað til þú gefur svo að áfengið fari úr mjólkinni, 2 tímar fyrir ca. einn bjór (heimild: mamma hennar lou:) )
allavega held ég að sænsku ungabörnin séu alveg húrrandi kát þessa dagana, komin á karíókíbar að syngja “mjóóólk er góð, fyrir káta krakka”
hehehe já ekki spurning:)
Danskir læknar gáfu nú út eitthvað um að 6 einingar af áfengi (=6 bjórar eða 6 skot etc.) á viku væru í lagi á meðgöngu, dönsku dömurnar ákváðu notla að það mætti alveg eins drekka allan skammtinn sama laugardagskvöldið, læknarnir fengu bakþanka…
heheehe…. það verður líklegast alltaf að miða svona leiðbeiningar við þær allra vitlausustu og alkana:)
heh, brjóstamjólkin er jafnáfeng og blóðið og maður þarf nú að drekka ári mikið til að komast jafnvel upp í eitt prósent. Bara kommon sens að það geri ekkert til að fá sér eitt og eitt glas með brjóstagjöf (nei, kaupi það ekki að það þurfi að bíða – enda er ég ekkert viss um að það breyti neinu, nema þá maður mjólki sig og hendi mjólkinni).
Hlusta mikið frekar á að maður eigi ekki að fá sér í glas á meðgöngu, því blóð barnsins fær sama áfengismagn og móðurinnar. Mjólkin nær því aldrei nokkurn tímann að vekja þvílík áhrif.
Danski læknirinn minn spurði mig þegar ég gekk með mína elstu, hvort ég reykti, nei, ekki gerði ég það, drykki, lítið og sjaldan sagði ég. Hann sagði að það væri alveg í fína, á meðan ég drykki mig ekki fulla og ekki á hverjum degi. Síðan hef ég verið frekar róleg með þetta bara – og trúið mér, krakkarnir mínir þjást ekki af FAS.
(sorrí innrásina, rakst bara á heitið á færslunni inni á wordpress dashboard og gat ekki setið á mér
)
haha, og svo fatta ég núna, eftir að ég skrifa, að auðvitað veit ég alveg hverjar þið eruð…
hrmm, hví kom þessi færsla inn en ekki langlokan mín um áfengið og brjóstagjöfina?
ha?
skiliggi hahahaha – sko kommentið, skil alveg færsluna
jújú mamma segir.. og ég er búin að lesa þennan bækling svo milljón sinnum yfir, að það megi drekka með barn á brjósti, svo lengi sem það líði slatti tími þar til barninu er gefið.
2 tímar fyrir hvern drykk. Svo einn bjór = tveir tímar í að gefa barninu. Tveir bjórar = gefa barninu í fyrsta lagi eftir 4 tíma.. osfrv.
Hvað er ég svosum að skipta mér af þessu hahahahah no worries fyrir mig, ég má fá bjór WHENEVER!!!! múhaahahahahah
aha!!
fyrsta kommentið frá Hildigunni var skráð sem spam! ég afspammaði það og voilá!
ah, hlaut að vera. Einn ræfils tengill og Akismet þurrkar mann út. Aldrei má maður ekki neitt…