Fyrir þá sem ekki vita þá eru konur í miklum meirihluta hérna á heimilinu, staðan er 3-1 fyrir okkur. Vanalega vorkenni ég Bjarka ekkert fyrir að vera í þessari aðstöðu, það eru jú ekki allir karlmenn sem eiga 3 konur sem finnst hann flottastur af öllum. En þessa dagana er ekki gott að vera minnihlutinn. Bjarki er samasem að upplifa það að búa með þremur konum með bullandi PMS. Ein að fá fyrstu tennurnar = grenjar og bítur allan daginn, hin að fá 2ja ára jaxlana = grenjar og bítur og klípur allan daginn og mamman búin að vera með túrverki og á hormónatrippi í 1,5 mánuði = ekki skemmtileg kona. Svo eins og þið sjáið þá er ekkert grín að vera bjarki þessa dagana. faðmið hann ef þið sjáið hann.
Annars þá vorum við Lou loksins reunited á djamminu föstudaginn! mikil gleði þar! og af sjálfsögðu fórum við í karókí! en ekki hvað! Live Pub var staðurinn og svona til að vera polittíkallí korrekt og allt það þá kom í ljós að þetta er greinilega aðalstaður asíu ættaðra íslendinga og vorum við lou í miklum minnuhluta. Bara gaman og að sjálfsögðu slóum við í gegn. næst tökum við líka asísku popplögin, ekki spurning!
Stórt knús til Bjarka!!
það verður nú öruggl totally worth it ef hann er stórstjarnan á heimilinu..