af spéhræddum ameríkönum

3 03 2008

Við GurrPurr vorum eitthvað að spjalla saman um daginn og talið barst að brjóstagjöf.. og þá mundi ég skyndilega eftir þegar ég var að horfa á rauða dregilinn fyrir Óskarinn á E! Entertainment. Ryan Seacrest (ömurlegi) spurði hina kasóléttu Jessicu Alba hvort hún ætlaði að hafa barnið á brjósti þegar það fæddist.. og Alba svaraði: “RYAN!! That’s PERSONAL!!” alveg stórhneyksluð! Þetta stakk mig aðeins. Er þetta svona voðalegt feimnismál þarna??? Er þetta einmitt ekki eitt það náttúrulegasta í heimi?? Auðvitað horfir þetta kannski aðeins öðruvísi við í samfélagi þar sem konan fær 2 vikur í fæðingarorlof, barnapíur taka við uppeldinu að því loknu og þess vegna kannski minna sjálfsagt að gefa brjóst, en kommon, að bregðast samt svona við þegar maður er spurður út í brjóstagjöf. Greyið Seacrest kannski að reyna að tala óléttu-lingóið. Þá rifjaðist líka upp fyrir mér umræðan um að banna brjóstagjafir á kaffihúsum í Danmörku. Veit einhver hvort það fór í gegn??? Alveg finnst mér það fáránlegt. Ég meina, svo lengi sem smekklega er að þessu farið, að móðirin sé ekki sprangandi um kaffihúsið með annað brjóstið lafandi út, þá finnst mér þetta bara sjálfsagt mál. Það er ekki snefill kynferðislegt við brjóstið þegar það þjónar þessum göfuga tilgangi, ef einhverjum finnst það þá er viðkomandi bara nett pervertískur held ég hehehe.. og svo er bara gott fyrir börn að sjá hvernig kvenlíkaminn virkar. Óþarfi að vera með endalausa spéhræðslu.

Talandi um það – þá finnst mér til dæmis spéhræðsla útlendinga í sundlaugum Íslands skondin. Þetta myndi líklegast flokkast undir argasta klám í Bandaríkjunum, fyrst þar er fólk dæmt í margra ára stofufangelsi fyrir læknisleik. Englendingar ekkert mikið skárri þegar kemur að almenningssturtum. Ég fann bara hvernig ég smitaðist sjálf af nettri spéhræðslu í gymminu í Leeds, þegar ég var sú eina sem var eitthvað að nota sturturnar og klæða mig úr fyrir framan alla.. Flestir fóru bara í öllum fötunum inn í sturtuklefann og þegar búið að var að loka að sér var farið úr fötunum. Þau síðan hengd upp á hurðina. Róum okkur alveg. En þetta hafði áhrif á mig, mér fannst allir horfa á mig ef ég gerði tilraun til að hátta mig fyrir framan annað fólk. En já, það segir sig þá sjálft að það hlýtur að vera algjört sjokk fyrir þetta lið að koma í sundlaugarnar til Íslands. Dregur fyrir sturtuna í ofboði, eða já hættir við að fara í Bláa Lónið þegar fréttist af þessu, eins og Gurr lenti í með einhverja útlenska gesti.

Mér finnst þessi sturtumenning Íslendinga bara jákvæð. Mér finnst rosalega jákvætt að börn fái að sjá hvernig alvöru fólk lítur út. Og venjist því bara. Í sturtuklefum landsins sjá ungar stúlkur hvernig alvöru konur líta út og hvernig þær eru af öllum stærðum og gerðum. Annars væru konurnar í tímaritunum og bíómyndunum einu kvenfyrirmyndirnar. Og það efast ég um að sé gott.


Actions

Information

7 responses

3 03 2008
Lára klára

Heyr. Er kannski pælingin að fólk alist upp við að sjá aldrei neinn allsberan nema sjálft sig, þá sem það sefur hjá og svo liðið í bláu myndunum? Engin furða að öllum virðist finnast sinn eiginn skrokkur alveg glataður ef það hefur aldrei séð ófótósjoppaða skrokka.

4 03 2008
Jóhanna

það er líka bara svo gott að vera á bossanum. Góð pæling Lovísa, étla glenna mig geðveikt næst þegar ég fer í sund.

4 03 2008
silja

Hæ hæ Lovísa,
Í líkamsræktinni hérna hjá mér í USA er svona 1/3 sem fer í sturtu ófeimnar, 1/3 sem fer í lokuðu klefana og fer úr fötunum og klæðir sig í þar og svo 1/3 sem hreinlega fer heim í sturtu.
Ein erlend vinkona mín í sem bjó í danmörku fékk þvílíkt áfall þegar hún var kom að nakinni konu tala við karlkyns rafvirkja í búningsklefa í líkamsræktarstöð þar….hún sem hélt að hún hefði upplifað allt sem hægt var í Íslensku sundlaugunum….hehehe Svo þetta er algjörlega mismunandi eftir löndum. Kveðja Silja

5 03 2008
Höski

Jamms, ég man þegar ég fór fyrst í gymmið í USA, var á leið í innisundlaugina, eftir púlið NB, og þar náttúrulega fer maður í sturtu og þvær sér (littli skítaklebrinn…) Var tvisvar bennt á sturtur með svona hengi fyrir meðan á þessari 2 mín sturtu stóð.

en ég var reyndar í suðurríkjunum þar sem það er í góðu lagi að sofa hjá náfrænku sinni, en algert reiginhneyksli að fara á baðfata í sturtu!

5 03 2008
Höski

án baðfata átti þetta að vera…

5 03 2008
Ragga nagli

Snorri lenti oft í þessu í Edinborg þar sem hann fór samviskusamlega í sturtu, nakinn auðvitað, bæði fyrir og eftir sundferð og í hvert skipti var glápt á hann af öðrum sundlaugargestum og nokkrum sinnum kom baðvörðurinn og skammaði hann. Það var nefnilega bannað að fara í sturtu allsber í Skotlandi. Ekki beint girnilegt að fara í sund þegar fólk þvær sér ekki almennilega áður en farið er oní laug….viðbjóður.

5 03 2008
Gurrý

alveg fáránlegt í rauninni að líkaminn skuli vera svona mikið feimnismál…ég fæ alveg nett út úr því að spranga um nakin í sundi þegar ég sé að útlendingar, sérstaklega kanar, eru á svæðinu…næst þegar ég er með Þórdísi í sundi og sé kana þá ætla ég þokkalega að vippa brjósinu út líka og gefa henni að drekka!…senda þá öskrandi út…

Skrá ummæli