fyrstu youtube myndböndin mín

28 02 2008

hehe ein voða stolt heheh nei segi nú bara svona, hér eru að gamni myndbönd frá Egyptalandi, bara svona stemningsmyndir..

fyrsta myndbandið er partý út í miðri eyðimörk, sést ekki mikið fyrst en svo lagast það þegar líður á. Þetta var held ég síðasta nóttin á felucca siglingunni niður Níl og þarna hittum við áhafnir og farþega á öðrum felucca bátum, kveiktum eld, drukkum egypskan bjór og þó nokkrir fíluðu grasið þar sem það grær!

Annað myndbandið er bara týpísk stemning á felucca bátnum á Níl, minn yndislegi hópur að tsjilla bara. 

Þriðja og síðasta myndbandið sýnir mig og fleiri á röltinu í Kaíró, á leið á markaðina.. það má sjá hvernig veitingahúsamennirnir reyna að veiða mann til sín og svo heyrist greinilega bænakallið frá moskunni, ég vaknaði á nóttunni við þetta alveg sirka fyrstu vikuna.. en svo vandist maður þessu..

þetta er bara svona stemning, gaman að þessu

lesa má dagskrána í ferðinni í heild sinni hér


Actions

Information

2 responses

3 03 2008
Jóhanna

oh. Maður verður svo veikur þegar maður skoðar svona. Svei þér stelpa.

3 03 2008
lou

svo setjum við inn myndbönd frá Perú og látum aðra verða veika MÚAHAHHAHAHAHAAAA

Skrá ummæli