…ekki dauð úr öllum æðum…

26 02 2008

nei, önnur tveggja karókídrottninganna er ekki alveg dauð, bara búin að vera upptekin við að unga út börnum, læra sálfræði og þjást af bloggleiða. En það er búið, það er bloggleiðinn. Börnin eru ennþá hér sem betur fer en námið í fæðingarorlofi.  Lou er líka búin að skvísa bloggið svo upp svo svakalega að ég get ekki annað en verið memm aftur.  Það er samt alveg spurning hvort að maður eigi að þora að blogga aftur fyrst að það er komið fordæmi fyrir því að sakfella bloggara fyrir að drulla yfir fólk…er sá tími liðinn að netheimar var staður þar sem að maður gat sagt allt um alla áhyggjulaust og án ábyrgðar og án þess að þurfa að confrontera þá sem drullað var yfir? jahérna… spurning hvort þetta nái þá yfir á spjallsíður og svoleiðis líka, þá eru þær á barnalandi í djúpum skít…

Aldrei þessu vant fór ég í leikhús um helgina, á Jesus Christ. Ég fór með gersamlega mínus væntingar þar sem að allir dómar sem ég hafði heyrt um sýninguna voru ömurlegir. En það að fara með mínus væntingar og með þó nokkuð áfengi í æðum svínvirkaði alveg hreint! Mér fannst sýningin amk ekki sem verst. Tónlistin getur ekki klikkað og hljómsveitin var nottla snilld, Amy Winehouse fiðlugellan var ýkt kúl, og kann alveg á fiðluna…sem er alveg nóg til að gera mig abbó þar sem að ég kann ekki á fiðlu ( fyrir utan að spila hani, krummi, hundur, svín…) og get ekki verið með Amy Winehouse hár…já og við skulum ekki ræða þær breytingar sem þyrfti að gera á kjólnum til að ég kæmist í hann…..ehem…Sumsé, hljómsveitin var ýkt flott útlítandi og spilandi.  Sko ég ætla ekkert að vera e-ð að koma með dóm um sýninguna, en það var bara eitt sem fór ógessla í taugarnar á mér. Það var að tónlistarstjórinn (eða einhver) lét alla öskra óþarflega mikið …ok,ok þetta átti að vera svaka rokk og blih, en það þarf ekki að öskra sig hásan þegar e-ð er tilfinningaríkt, eða e-ð mikið er að gerast…tónlistin er alveg vel hæf til þess að miðla öllu því sem þarf að tjá. Ef að markmiðið var að breyta þessu í dauðarokksóperu þá tókst það.  Ég var eila bara hrædd þegar Heródes endaði lagið á því að verða andsetinn og öskra bara eitthvað, á stað þar sem að mig minnir að hafi verið melódía í upprunalega stykkinu…það hefði nú verið fróðlegt að sjá Pál óskar taka þetta í þessum stíl. En þetta var svosum ágætis skemmtun, verandi hálffull amk. Það er samt alveg spurning hvort að ég hefði mögulega skemmt mér betur ef ég hefði bara fengið að sitja áfram á kringlukránni að sötra rauðvín…svona þar sem þetta var fyrsti almennilegi dropinn eftir langa pásu…

En nú er endursýning á Forbrydelsen að byrja! uss!


Actions

Information

3 responses

27 02 2008
Íris

Sælar stúlkur og til hamingju með flotta síðu! Verið nú duglegar að blogga svo við aumingjarnir sem vinnum við tölvu allan daginn höfum eitthvað að gera..
hvernig var þetta aftur…. touching youhooou?

27 02 2008
lou

helvíti gott að muna þetta ;) rétt hjá þér!

27 02 2008
Arnbjörg

VEI… velkomin aftur Gurr mín í bloggheima og geima.. :) Ánægjulegt að þú hafir getað fengið þér rauðvínslögg og fundið á þér… hlýtur að hafa verið gaman eftir svona langan tíma… ég hlakka sko alveg til að prófa það aftur ;) yes æm a bitt..

Skrá ummæli