tómarúm

24 07 2007

Mér líður hálf skringilega. Ég kláraði nefnilega síðustu bókina um Harry Potter á sunnudag. Lokaði mig inni frá umheiminum, skoðaði ekki blöð eða netið eða horfði á sjónvarp. Glætan að eftir öll þessi ár að ég myndi frétta það utan úr bæ hvernig færi fyrir Harry mínum. Ég lauk við bókina um kvöldið og grét hamingju- og sorgartárum. Þetta er allt saman ljúfsárt.. glöð að niðurstaða sé fengin en leið yfir því að fá aldrei aftur að lesa nýja Potter bók. Þá er bara að lesa þær aftur enn einu sinni.. og svo aftur.. og aftur..

Takk fyrir allt Harry minn :)





aumingjahrollur vikunnar

23 07 2007

Úffffff. Það fer um mig pínlegur hrollur. Minnimáttarkennd Íslendinga í útlöndum er ótrúleg. Og hvað er það sem orsakar hrollinn? Jú, viðbrögð Íslendinga á kommentasvæði slúðurpésans Perezar Hiltons um myndband Páls Óskars. Vildi eiginlega óska að mér þætti þetta fyndið :) en nei, bara sorglegt! :) Kommentin verða átakanlegri þegar neðar dregur á síðunni.. til dæmis komment nr.131.. who bloody cares, elsku vinur?





070707

10 07 2007

Ammlisdagurinn var yndislegur. Eins og allir afmælisdagar. Ég eeeelska að eiga afmæli. Takk þið sem mættuð og skemmtuð ykkur – það var jú tilgangurinn með þessu öllu saman :) Og þið sem munduð eftir mér og senduð kveðju.

xxx

kær kveðja
Lovísa
older and wiser