Ég er Únglíngamamma!!

20 11 2006

maður er nottla búin að heyra “klisjuna” um að börn vaxi svo hratt alveg skrilljón sinnum, but it´s true!!! Katla er að veraða unglingur ég sverða, en samt kom hún bara út í gær! Hún sum sé ákvað á laugardaginn að þá væri gott að byrja AÐ GANGA!!! jebbs, tók fyrstu 5 skrefin og er búin að vera óstöðvandi síðan. Svo var hún að byrja í aðlögun á leikskólanum í dag! yup, my baby´s growing up!! sniffsniff…Það er alveg víst að þessi aðlögun er meira fyrir mig en hana. En greyjið hinir krakkarnir, vita ekki hvað þau eru komin útí…Katla-formaður er mætt á svæðið. reyndar byrjaði hún heimsyfirráðin á leikskólanum frekar rólega, kýldi t.d. bara einn gaur með dóti. hann átti það alveg skilið samt. Þannig að framundan eru 10 aðlögunar dagar og eftir það verður klippt á naflastrengin endanlega.+

já myndin…katlan er ekki bara formaður, heldur grínari. Hún er búin að fatta nokkra hluti sem láta foreldrana hlæja. í fyrsta lagi er það að hlæja gerfihlátri, hún er búin að skilyrða okkur til að hlæja alltaf að því. Hitt er nkl þetta, að klessa sér upp við rúðuna, fyrst mamma svo katla, svo mamma, svo…já und so weiter. óendanlega fyndið…


Actions

Information

Skrá ummæli