ég á útsmoginn kall. og það þarf greinilega sálfræðinám fyrir mig að komast að því þar sem ég er ekkert allt of skýr. Hann er ofboðslega góður við mig, en útsmoginn engu að síður. þetta kemur ss fram í þeirri gjafmildi hans að vera alltaf að bjóða mér á tónleika. Við erum eins og allir ung-íslendingar, (kýs að kalla mig unga fram í rauðan…) sem eru í námi, með barn og nýja íbúð, alltaf í aðhaldi. En bjarki er búin að finna leið framhjá fjármálastjóranum með því að höfða til dekurdollunnar og konunnar í mér og vera alltaf að “bjóða” mér á tónleika sem hann langar á…e-s konar útgáfa af keep your friends close but….ect…. Eníhú, vegna ákveðinna “lögmála” í mannlegri hegðun þá kann maður nottla ekki við að segja nei við gjöfum og góðmennsku, það er bara í eðli mansins ( þennan part var ég sumsé að læra;)hoho…) ég fattaði þetta reyndar ekki fyrr en hann bauð mér á morrissey, mann sem ég yfirlíst ÞOLI Ekki ( sorry toggi), tónlistin er fín en rassinn herpist bara við að heyra þessa rödd. Þetta veit bjarki, en af pjúra góðmennsku bauð hann mér engu að síður á tónleikana. þá fóru bjöllur loks að klingja….. I had been outsmarted. Ég er reyndar með á prjónunum að nýta mér þetta fína system bara sjálf, við bjarki eigum panntaðan tíma í litun, plokkun og brazilian á nordica á morgun.
Mér datt þetta bara svona í hug af því að hann bauð mér á Sykurmolatónleikana á morgun, sem er hið besta mál því að mig langar jú að fara. en þar sem þetta er boð þá fékk ég nottla ekki að vita verðið, og mother#Ö#$%”%#”Ö$!”"#”#!!! hvað þetta er dýrt!´ég var ss bara að frétta í gær hvaða geðveiku upphæð þeir eru að rukka. nett sjokk svona. ég hlýt að fá freyðivín og jarðaber og vera nudduð af brúnum hombre á meðan.
bráðum flytjum við í tjald á klambratúni til að eiga fyrir boðum kallsins.
Nýleg ummæli