Edinborg

9 05 2006

Edinborg var ógurlegt stuð. Ekki við öðru að búast svosum. Stuðið byrjaði sko í lestinni á leiðinni þar sem hún var stútfull af steggja- og gæsapartýjum, ég skemmti mér konunglega við að hlusta á leikina sem gæsirnar fóru í, þær voru svosum ekki þær einu með áfengi um borð, heldur eiginlega allir, við Danny þar engin undantekning. Ragnhildur og Snorri tóku vel á móti okkur, hittum þau á bar á þvílíkt krúttlegri götu, Rose Street, fengum svo brjálæðislega góðan indverskan mat á einhverjum veitingastað, töltum um Royal Mile og Haymarket í þynnkunni næsta dag, fengum okkur posh heitt súkkulaði á súkkulaðiveitingastað.. já bara mjög góð stutt ferð! Munaði litlu að veðrið hefði verið viðbjóður, en það rættist skyndilega úr deginum, sem betur fer. Hér eru svo fleiri myndir. Mest þó einhverjar fyllerísmyndir hehehehe.. Takk fyrir okkur Rainy og Snorri!

Það var svo bara hardcore redding með síðustu ritgerðina mína, við komum heim klukkan níu um kvöldið og þá átti ég 2500 orð to go, algjörlega andlaus heheheheh en viti menn, ritgerðinni var skilað tímanlega!! ábyggilega ekki neitt meistaraverk, en hún dugar! Framundan er þá bara að læra fyrir prófið mitt 18.maí og undirbúa heimferð. Ég er á einhverju big spender skeiði og skil bara ekkert í því hvað saxast á peningana mína!! Vonandi kemst ég heim! ;) en já, ef veðrið heldur áfram að vera svona gott þá er sko planið að hanga útí Hyde Park að læra!!


Actions

Information

Skrá ummæli