Hvað er að gerast hérna á fróni! bara geeeðveikt veður tvo daga í röð!
Þar sem það sýndi 14 stig í skugga klukkan 11 í morgun þá fórum við Katla út í garð í smá könnunarleiðangur. Þetta var allt saman æsispennandi og tæranar næstum því iðuðu af fætinum þegar hún var berfætt á grasinu. Simple minds simple pleasures. Svo var líka farið í míni bað/busl í geislanum, bolti, bjór, grill og göngutúr…allt eins og það á að vera á íslenskum sumardegi. Svo er stefnan sett á pikk-nikk á austurvelli með Þóru og Tinnu á morgun..spáin segir víst sól þannig að ég ætla bara að trúa því. Allt er þegar þrennt er…er þaggi bara…
Annars er ég núna á leiðinni að fara að skoða nýja afkvæmið þeirra Eibs og Víkings, hina loðnu og ferfættu Birtu litlu
Nýleg ummæli