25 04 2006

“sá ég spóa suðrí flóa gefur Gurrý útí móa, bíbíbíbí”
…..var lagið sem að ég var með á heilanum þegar ég var að koma út göngutúr með kötlu áðan. Einfaldlega vegna þess að þetta var akkúrat það sem ég gerði. fyrir utan að ég held að ég hafi ekki séð spóa. Ég held að Katlan sé að taka vaxtarkipp því að hún drekkur og drekkur og ef hún fær ekki að drekka strax þá breytist hún (eins og svo oft áður) í demon-babyið úr incredibles. Akkúrat þetta gerði hún niðrí nauthólsvík, fjarri heimili eða öðrum vanarlegum gjafarstöðum. Móðirinn mun hafa misreiknað e-ð göngufjarlægðir og drykkjartíma með tilliti tilumræddds vaxtarkipps ( rookie mistake án efa) Þannig að eftir að hafa reynt að róa hana og ganga í eilífð þá var bara eitt í stöðunni: Fara með litla eldfjallið útí móa, vippa fernunum út og gefa henni það sem hún vildi. Eftir það var hún eins og lamb af sjálfsögðu.

knús dagsins, vikunnar og jafnvel bara mánaðarins fær Lovísan mín:) xxx


Actions

Information

Skrá ummæli