komin heim

19 04 2006


Þetta var nú meira ævintýrið. Alveg æðisleg ferð! Að mörgu leyti var ferðin töluvert öðruvísi en ég hafði búist við, ég hafði haldið að Egyptaland væri þróaðra.. eða sko, að sjá aðstæður sem fólk býr við og hvernig allt er að hruni komið í Kaíró sem er 22 milljóna borg. Samt sem áður fannst mér ekki eitthvað beinlínis óþægilegt að sjá hvernig fólkið lifði, þar sem allir virtust hamingjusamir og börnin voru engan veginn vannærð í útliti, voru bara ánægð á ösnunum sínum og litlu bátunum á Níl. En þetta var svo sannarlega eins og að fara með tímavél þúsund ár aftur í tímann. Nema þegar mennirnir í kuflunum á ösnunum töluðu í farsíma.

Mér fannst ég vera eitthvað svo lítil innan um pýramídana. Standa þarna innan um eitthvað sem var byggt fyrir 4500 árum!! Sphinxinn er pínulítill :) En geggjað flottur auðvitað. Mesti “awe-factor”inn fyrir mig var samt að sjá Tútenkamonhlutann í safninu í Kaíró. Ég hefði getað staðið fyrir framan grímuna allan daginn. Að sjá allt gullið sem fannst í gröfinni hans og hvað það var lagt FÁRÁNLEGA mikið í hana var algjörlega MAGNAÐ. Og bara svo hrífandi saga hvernig gröfin fannst!!! Eina gröfin sem hefur fundist í heilu lagi ósnert því hún var svo vel falin, grafarræningjum tókst aldrei að finna hana. En 1922 fannst hún.. á síðasta degi leitarinnar, þar sem peningurinn til leitarinnar var búinn :) Og hvernig hann stakk höfðinu inn um pínulítið gat á hurðinni með kertaljós og beið eftir því að augun vendust myrkrinu.. og svo bara sá hann allt gullið!!! Meiriháttar :)

Leiðsögumennirnir okkar voru góðir alla ferðina. Mér finnst svo fyndið, það verður að læra inn á sölumennina og leiðsögumennirnir vöruðu okkur við heheheheh til dæmis má aldrei taka við gjöfum.. því á endanum verðurðu að borga fyrir hana ef þú þáðir hana heheheh.. og stundum bjóða þeir upp á “ókeypis” úlfaldaferðir.. jájá ókeypis að fara upp á, en þú þarft að borga ef þú vilt komast af baki! :)

Aswan var spes. Gaman að sjá markaðina, en það er bara svo mikil synd hvað maður bara gefst upp eftir smá stund og nennir ekki að skoða, því áreitið er svo gríðarlegt!! En í Aswan sigldum við yfir til lítillar eyju og heimsóttum þorp, Nubian þorp, en það er semsagt þjóðflokkur sem heldur til að mestu í Egyptalandi. Þar fengum við heimagerðan mat hjá fjölskyldu og heimsóttum barnaskólann. Æði að sigla tilbaka. Þá lágum við á þaki bátsins og horfðum á stjörnurnar.

Abu Simbel var stórkostlegt. Engin smá stærð á þessu!! Og stórmerkilegt að heyra hvernig hofin voru flutt frá sínum upprunalega stað.. þegar stóra stíflan var gerð, þá varð það ljóst að Abu Simbel hofin myndu hverfa undir stærsta artifical stöðuvatn heimsins, Lake Nasser, sem myndi myndast við stífluna. Svo það var ákveðið að skera öll hofin í búta og færa þau til!!!! Væntanlega höfðu þeir engu að tapa, þar sem hofin voru hvort sem er dauðadæmd þar sem þau voru.. En þetta heppnaðist vel og þessum merku minjum hafði verið bjargað, í samvinnu við lönd um allan heim sem fjármögnuðu verkið. Það er svona það sorglegasta við allt saman, það er svo áberandi hvað Egyptar hafa sjálfir gert lítið til að finna og varðveita minjarnar sínar. Þetta er allt eitthvað lið frá öðrum löndum. En þetta kostar jú brjálæðislegar upphæðir, svo Egyptaland getur ekki haldið þessu við án aðstoðar.

Siglingin á the feluccas var ÆÆÆÆÆÐI!!!! Þrír dagar af einhverju letilífi og busli í Níl! Ekki á hverjum degi sem maður gerir það! The crew voru algjörir snillingar, bæði hressir og skemmtilegir og útbjuggu góðar máltíðir á bátnum.. þeir voru líka þvílíkt góðir við mig þegar ég var veik, gerðu handa mér eitthvað aníste, sem róaði magann þvílíkt.. Strandpartý og kaldur bjór, þorp og hof heimsótt.. já þetta var bara algjör snilld! Fyndið hvernig maður vaknaði svo um miðjar nætur við lætin frá moskunum í kring! Sofa Egyptar ekkert??? Klukkan þrjú á nóttunni hrökk maður upp með andfælum við að einhver var að GARGA í hljóðkerfið.. “AAALLLAAAHHHHHHH” með tilheyrandi slaufulaglínum. Mörg þorp blönduðust svo saman í gargi, svo það var bara vonlaust að sofa :) Verst að ég get ekki sett inn video, því ég á mjög gott video af þessu, köllin til bæna heyrast MJÖG vel :)

Konungadalurinn auðvitað magnaður. Fórum þangað á ösnum, sem var athyglisvert, en því miður get ég ekki sagt að mér hafi fundist það æði :) var nefnilega skíthrædd heheheh algjör aumingi!! Það er bara ekkert til að halda sér í og asninn minn lét ekki að stjórn!! Stoppaði sko ekkert þegar ég kippti í bandið og sagði “ússjj ússjj”!! Svo ég, ásamt 2 öðrum í hópnum, fórum ekki á ösnunum tilbaka :) Þeir fara víst enn hraðar þegar þeir vita að þeir eru á heimleið og ég hefði bara ekki notið þess :) samt gaman að hafa prófað! Einnig því við fórum á asnana á pálmasunnudag :) :) Gengum upp á The Magic Mountain, hélt ég myndi bara detta niður dauð á staðnum, enda var kæfandi hiti og ég hafði lítið sem ekkert borðað í 3 daga vegna slappleika í maga. Luxor var mjög næs, enda ein hreinasta borg Egyptalands. En við skildum fljótlega af hverju hún er kölluð “the hassle capital of the world” því það var bara nánast ómögulegt að labba úti á götu, það voru bara sölumenn allt í kring og einhverjir menn sem vildu fylgja okkur um allt og bónorðin flugu hægri vinstri. Frekar óþolandi til lengdar.

Eftir Luxor var haldið til Rauðahafsins, eða til Hurghada. Þá var skoðunarferðahlutanum lokið og við tók afslöppun. Það var frábært! Sigldum á snekkju út að kóralrifunum og snorkluðum þar. Aðstæður voru ekki sem bestar enda frekar hvasst þennan dag svo það var mikill öldugangur. Mér gekk ekki vel í fyrstu tilraun að snorkla, gríman var ekki nógu föst á mér og vegna öldugangsins fannst mér eins og ég væri bara að drukkna, fékk smá innilokunarkennd þá að dýfa hausnum oní og treysta á öndunarpípuna, fannst eins og öldurnar myndu bara koma oní. En þetta lagaðist allt saman og ég var orðin eins og algjör pró í endann heheheh.. og þetta var ÆÐI. Ekkert smá gaman að sjá fiskana og kafarana og kóralrifið auðvitað. Myndavélin sem ég keypti var samt eitthvað algjört drasl greinilega því myndirnar eru ekki góðar :)

Eftir Rauðahafið var farið aftur til Kaíró þar sem ég hafði næstum þrjá heila daga. Leist ekkert á það fyrst, þar sem ég var alveg uppgefin og komin með nóg af sól, en Cairo grows on you á undarlegan hátt :) Var orðin bara þaulvön umferðinni og gekk yfir stóru hringtorgin eins og innfædd, með brunandi bíla allt í kring..

Hópurinn sem ég var með var MEIRIHÁTTAR! Það skiptir öllu máli! Frá fyrstu nótt var ég í herbergi með ástralskri stelpu, Corinne, og við urðum algjörar samlokur. Saman 24 tíma sólarhringsins í 2 vikur! Hún býr í London og stefnan er sett á að hittast aftur sem fyrst. Gaman að hafa íslensku stelpurnar, það var nú meiri tilviljunin, og stefnan er sett á réttaball í haust :) :) Þar að auki hékk ég mest með Mayu frá London og svo Tristan og Leigh, allt algjörir snillingar. Alveg var fyndið að komast að því hvað Tristan gerir.. hehe.. en hann er semsagt persónulegur butler drottningarinnar!! ekkert smá fyndið að sjá heimilisfangið hans “Buckingham Palace” heheheheh.. Hann má fá heimsóknir, svo hver veit nema maður skelli sér í tesopa í höllinni :) Auðvitað var spes lið með líka, eða réttara sagt Kínverjarnir, sem héldu sig mest út af fyrir sig.. og þar var allra gráðugasta manneskja sem ég hef séð um ævina heeheh í hverjum matartíma á the felucca var eins og hún hefði aldrei fengið að borða! Hún sat við diskana, rétti aldrei neitt áfram og aðrir þurftu að segja henni að aðrir ættu eftir að fá.. og ég taldi diskana oní hana eitt kvöldið.. á meðan ég borðaði tvo litla, borðaði hún SJÖ!!! :) þetta var alveg ótrúlegt að sjá.

Eins og sjá má tók ég FULLT af myndum og hér er slóðin. Uppáhaldsmyndin mín er þessi hér :) Ég fílaði mun betur að fara á úlfalda en asna og fór tvisvar í úlfaldareið.

Búin að hafa það mjög gott frá því að ég kom heim. Páskadagur var meiriháttar, fjölskylda Danny er yndisleg og það var gott að vera í alvöru fjölskylduumhverfi, ég hef ekki verið í þannig síðan um áramótin.

Já semsagt, þetta var allt algjört ævintýri og af því að þetta var svo allt öðruvísi finnst mér eins og ég hafi verið miklu lengur í burtu! Vonandi drápust þið ekki úr leiðindum við að lesa þetta!


Actions

Information

Skrá ummæli