14 04 2006


Þessi unga snót hún Sigfríður, aka Eibí beibí, á ammæli í dag! TIL LUKKU MEÐ DAGINN!!! kusskusskusss! Og í tilefni af því ætla ég að gera tilraun tvö til að komast í fyrsta partýjið. Ég hélt reyndar að það væru e-r álög á mér í gærkvöld þegar mér varð e-ð geðveikt flökurtog var e-ð svona flensuleg. Ég hefði reyndar bara farið samt. en allt er í gúddí og ég er búin að setja hvítvín, bjór og fullt af mama’s own mjólk í kæli og kominn með driver og pössun. All good to go. Ég reyndar komast að því að ég á ENGIN djammföt!! og það er !”#$#”%$”# föstudagurinn langi þannig að ég get ekki reddað því…urrrg. Það er nebbla rúmt ár síðan að ég hef e-ð pæjað mig almennilega upp, ó-tvílifra það er ( híhíhí elska þetta orð tvílifra…híhí – Þakkir til þorbjargar fyrir það) Þannig að núna verð ég að djamma geðveikt last season…meeeen. Amk passa ég aftur í gallabuxurnar mínar þannig að ég þarf ekki að djamma í óléttubuxum, það hefði verið svoldill moodbreaker. En jevlar hvað ég hlakka til, ég er eins og Gurrý 5 ára á jólunum!


Actions

Information

Skrá ummæli