weekend getaway….

9 04 2006

Þessi helgi var annar í ammæli hjá Bjarka. Það er fátt skemmtilegra en að gera sörpræs fyrir e-n sem meikar ekki óvissu:)muahahha… en ég ákvað að kvelja hann ekki meira en nauðsynlegt var svosum, þannig að klukkan 1500 hours í gær fékk hann að vita plottið og við lögðum af stað inn í hvalfjörð á Hótel Glym, með gos og kruðerí og góða tónlist í tækinu. Ég var alveg búin að gleyma hvað hvalfjörðurinn getur verið fallegur. En Hótel Glymur er alger snilld! það var verið að gera það upp núna í jan og feb þannig að öll herbergin eru ný, ógessla flott á 2 hæðum go með geðveiku útsýni. Svo eru líka heitir pottar þanna og alles, góður matur, bar og já, bara allt sem mar þarf fyrir romantic getaway:) helgin hefði ekki getað verið betri! Reyndar komst ég að því að jóh klanið er með útendara allsstaðar! maður er hvergi óhultur! ekki einu sinni á afskekktu hóteli í hvalfirðinum…
Svo varða punkturinn yfir i-ið að Katla var eins og engill hjá Þórdísi ömmu á meðan. Ég held að hún hafi ekkert saknað okkar…ég er að reyna að taka það ekkert svakalega nærri mér…


Actions

Information

Skrá ummæli