París…

30 01 2006



..var SNILLD. Ekkert flóknara en það. Frakkarnir lögðu greinilega mikla vinnu í að hafa þetta alvöru íslenskt kvöld – byggðu meira að segja heita potta og allt! Tónleikarnir heppnuðust vel, Ilmur og hennar gengi voru frábær, Gus Gus og DJ Margeir voru með brjálað ball og ég veit ekki hvað og hvað. Svo rölt um borgina, sem er auðvitað yndislegt. Gott að sjá pabba sinn og Arnbjörgina sína. Hér eru myndir. Ahhhhhhh hvað þetta var gaman! Og sko alls ekki víst að poppstjörnudagar okkar séu á enda – ónei – meira um það síðar (vonandi allavega!) híhíhíhí ;)

Og lagið sem ég hef alveg haft á heilanum síðan er…:

Strawberries cherries and an angel’s kiss in spring
My summer wine is really made from all these things
Take off your silver spurs and help me pass the time
And I will give to you summer wine
Ohhh-oh summer wine

Fær mig til að brosa :)

Knús dagsins fær svo Arnbjörg.





jólavorhreingerning

26 01 2006

Hvaða tryllitæki er þetta, gætu sumir spurt sig! Enn aðrir gætu spurt hvaða ógeðslega teppi þetta væri!!! Jú, ég hef svör við báðum spurningum.

Þetta er ryksuga heimilisins. Fáránlegri ryksugu hef ég aldrei séð í lífi mínu. Hún lítur kannski sakleysislega út á myndinni, en ónei, ekki er allt sem sýnist! Hún er brjálæðislega þung og eins og sést þá er “skrokkurinn” á henni frekar hár – og hann sveigist ekki til. Stúturinn sem stendur uppúr henni er það sem maður á að nota til að ryksuga inní horn og niður stiga og svoleiðis. Maður getur dregið hann út en þarf svo að halla öllu tækinu til þess að komast almennilega að! Ekki er hægt að beygja allan stútinn, það sem ekki getur beygst er eins og einn og hálfur handleggur eða svo – sem gerir manni engan veginn auðvelt fyrir. Svo maður er einhvern veginn að lyfta stútnum og beygja hann í mjög óþægilegri stöðu, þar sem það þarf að lyfta ansi hátt til þess að geta notað hann! Til þess svo að ryksuga venjulegt flatt gólf, þarf svo að draga hana að sér og setja “nefið” á henni niður. Um leið og þú leggur hana frá þér og nefið skýst aftur upp, spýtir sugan útúr sér vænum skammti af ryki og ógeði. Hentugt!!

Þessar ryksugur eru voðalega vinsælar hér og strákarnir skilja ekkert í okkur Idu sem fussum og sveium yfir þessu. En góðu fréttirnar eru þær að eftir MIKIÐ puð (og tilvonandi kryppu á bakinu ásamt fleirum bakmeiðslum) eru stigarnir orðnir hreinir! Halelúja!

Og já, teppið.. – … er teppið á herberginu mínu. (og það er skárra á mynd en það er í raun og veru). Oj.

Allavega, ég er farin til Parísar. Ég er nefnilega poppstjarna að fara að syngja á tónleikum.





COME ON ENGLAND!!!

24 01 2006

Lovísa Besta frænkan var að senda Kötlu galla fyrir HM. Mín kona verður að sjálfsögðu að styðja rétta landið! Pabbinn er ekki alveg sammála því hvaða land það er, en too late! hún er all set með englands kittið..muahahha…líka alvöru fótboltaskó sem Gummi, Gestur og Jói Jökull gáfu…djöfull er mar flottur!





dj lou snýr aftur

22 01 2006

Það verður sko ekkert áfengi sett inn fyrir mínar varir fyrr en eftir Lady&Bird tónleikana í París næstu helgi. Lifrin getur ekki meir í bili. Þetta hefur verið alveg rosaleg vika og í dag er ég alveg búin á því.

Ég er alveg að uppgötva Headingley hverfið hér í Leeds. Vissi alveg að það væri rosalegt partýhverfi þar sem eru barir í röðum.. en vissi að það er stúdentahverfi svo fordómafulla Lovísa ákvað inní sér að þar væru bara átjánáragrislingar í gelgjulátum. Þar skjátlaðist mér algjörlega. Þar eru ekki gamlir pervertar og ekki of ungt lið, heldur alveg mátuleg blanda. Allavega um helgar, því þá er “dýrara” að djamma og stúdentarnir kjósa frekar að djamma í miðri viku. Ofsalega myndirlegir menn í hverju horni og bara almennt stuð :) Vildi óska að vinkonur mínar væru hér, þær myndu LOVE IT að fara þangað.. tók massa söknunarkast á föstudaginn, þegar ég var að djamma með tveimur stelpum sem voru meira uppteknar af því að stara á fallegu mennina í kring í stað þess bara að skemmta sér. Mig langaði svo að dansa frá mér allt vit. Hefði verið gott að hafa vinkonurnar á þeirri stundu.

Í gær var ég í houseparty, þar sem einn íbúanna er plötusnúður. Svona týpískt enskur DJ með nettan beni-fíling. Hann hélt DJ-keppni, sem snerist beinlínis um að velja sér lag úr vínyl safninu og mixa það saman við lagið á undan. Þarf að stilla hraða og svona og láta þetta passa. Ég vann. Fékk súkkulaði í verðlaun. Get ekki neitað því að mig langar rugl mikið í svona plötuspilarakit :) heheheheh.. alveg leyndir DJ draumar í gangi hahaahahah.. nottla ekki erfitt að mixa eitt lag.. vafðist þó fyrir sumum heheheh..

Húsfundur haldinn um daginn. Ég spurði Idu point blank hvort við mættum búast við oftar í framtíðinni að vakna klukkan hálfsjö á morgnana við brjáluð læti í eldhúsinu. Hún svaraði með illilegu glotti “maybe… if it’s dirty…” og ég sagði “það er FÁRÁNLEGT og þú veist það!” og þá fór hún í algjöra kleinu, sagðist ekki hafa gert það viljandi og ég spurði af hverju hún hefði þá svarað maybe if it’s dirty!! Enn meiri kleina. Fékk svo sms daginn eftir þar sem hún var voðalega sorrý. Svo allt er fallið í ljúfa löð á ný. Hún er greinilega ekki vön að einhver gagnrýni aðferðir hennar, heimildarmaður minn í Köben segir að hún vaði bara yfir fólk þar og enginn mótmæli, svo henni varð örugglega mjög brugðið. Og ég verð að muna að þrátt fyrir allt, er ég sú eina sem hún á að hér. Má ekki vera of vond við hana. Ætla þó ekki að láta hana vaða yfir mig, ónei. Hún verður aðeins að læra smá samskiptahæfileika, og ef hún getur ekki tekið smávægilegri gagnrýni þá fer illa fyrir henni í lífinu. Svo var soldið fyndið að sjá hvernig fundurinn snerist einhvern veginn í höndunum á henni. Hún hafði ætlað að fá sínu fram og varð mjög óhress með að við hin þrjú værum sammála um einhverja hugmynd sem ekki var hennar, hún hafði líka heimtað að fá að sjá reikninga til þess að “sanna” að hún væri að borga óeðlilega mikið, en svo kom í ljós að Matt er að borga mest svo hún þarf að punga út ögn meira… hehehe…

Eitt sem Íslendingar, sem ekki hafa búið í öðru landi, fatta ekki að þakka fyrir á hverjum degi. Það er heita vatnið í jörðinni sem gerir okkur kleift að hafa hlý hús. Þetta er algjört djók hér í Englandi þegar maður er vanur svona lúxus. Húsið mitt er náttúrulega alveg glatað, illa einangrað og bara einfalt gler í gluggum.. og það er bókstaflega vindur í herberginu mínu stundum. Rúmið mitt er við útvegg og ég verð að sofa með risastóra pullu upp við vegginn svo ég deyi ekki úr kulda. Svo er ég með sæng og teppi yfir mér. Vatnsflöskur haldast kaldar í herberginu mínu yfir nótt. Ég er bara nýfarin að venjast þessu, átti almennt erfitt með svefn fyrst.

Keypti eins hatt og ég týndi :) sem betur fer var hann enn til!!

Dreymdi undarlega. Að ég hefði fundið buxur nýkomnar úr þvotti þar sem vasarnir voru troðfullir af klinki. Og að ég væri að verða of sein á mikilvægt stefnumót. Vaknaði bara stressuð! Ráðning í klinkið, anyone?





klikkhausar og kokkteilar

19 01 2006

Margt gerst síðan ég bloggaði síðast. Strákurinn með engu sjálfsvirðinguna, sem ég skellti bílhurð í klofið á, hefur hringt að meðaltali fjórum sinnum á dag síðan þá. Ég hef ekki svarað. Svo gafst hann uppá því og fór að smsa. Ég ákvað að svara og sagði að ég væri búin að segja nei, ég myndi ekki skipta um skoðun. Hann hringir samt enn. Og ég svara ekki.

Undanfarið hefur sambýliskonan notað óvenjulegar aðferðir til þess að ná sínu fram í húsinu. Það er greinilegt að hún er ofdekrað einkabarn sem hefur vanist því að it’s her way or the highway – hún segir það m.a.s. sjálf. Hún hefur til dæmis sett hluti fyrir utan dyrnar hjá fólki ef það þvær ekki eftir sig. Ef glasið er enn óþvegið eftir klukkutíma er það komið fyrir utan dyrnar. Um daginn setti hún stóran hníf fyrir utan dyrnar hjá Matt, blaðið sneri upp og náði upp fyrir tröppuna.. Ég sagði henni að snúa blaðinu amk niðurávið, svo enginn myndi missa tá. Kærastan hans var næstum búin að hálsbrjóta sig þegar hún datt um hluti sem voru fyrir utan. Afmælisdagur sambýliskonunnar rann svo upp á þriðjudaginn. Klukkan HÁLFSJÖ vakna ég upp með andfælum, haldandi að það séu þjófar í húsinu með vinnuvélar að draga allt út úr eldhúsinu og stofunni. Lætin voru ÞVÍLÍK!! Við Ste, bæði á 3.hæð (eldhúsið og stofan á 1.) vöknuðum bæði og kíktum fram.. nei nei þá voru þetta engir þjófar, HELDUR SAMBÝLISKONAN AÐ REYNA AÐ VEKJA OKKUR MEÐ ÞVÍ AÐ BERJA Í POTTA OG SVOLEIÐIS!! Það þarf sko meira en lítið átak til þess að hafa svona hátt!! Og milljón dollara spurningin er: AF HVERJU??? Jáh, þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör. Mitt svar er: Af því að hún er bara snarbiluð. Svo má líka reyna að upphugsa svör eins og að hún sé svona stressuð yfir prófunum (hún hefur verið óvenju pirruð undanfarið), sé þreytt á umgengninni, sé að hefna sín því strákarnir spiluðu háa tónlist í hálftíma snemma á laugardagskvöldið.. hver veit?? Mér er bara drullusama, fólk sem gengur sæmilega heilt til skógar hagar sér ekki svona klukkan hálfsjö á morgnana. Svo kom hún inní herbergið mitt um tíuleytið, til að sýna mér blómvönd sem kærastinn hafði sent frá Frakklandi og ég bara “hvað í fjandanum varstu að gera í eldhúsinu í morgun???” og hún alveg eins og ljós: “ég var bara að ganga frá og fara út með ruslið…” Já einmitt!! Ég var svo ÓGEÐSLEGA REIÐ á þriðjudaginn að ég var alvarlega að hugsa um að flytja út. Ákvað að klára daginn og athuga hvort mér væri runnin reiðin næsta dag.

Á þriðjudagskvöldið var nefnilega íslenskt kvöld. Ég sauð hangikjötið um morguninn, ilminn lagði um húsið og það voru jól alveg uppá nýtt :) Það sló aðeins á pirringinn í mér. Ég var hrikalega kvíðin fyrir að búa til jafninginn, en fyrir eitthvað stórkostlegt kraftaverk tókst mér ekki að klúðra honum algjörlega. Var með einhvern PÍNKULÍTINN pott, hefði þurft miklu stærri, en þetta var alveg ætt. Og sambýlingarnir voru barasta hæstánægðir með þetta. Ég reyndi bara að ignora Idu, þar sem hún talaði nonstop um prófið sem hún var að læra fyrir og þýskt mál (ekki djók), en hún fór fljótlega aftur upp að lesa svo við hin áttum rosalega gott kvöld saman. Og Tarantino getur bara átt sig, því Ópal skotið sló í gegn!! Hér eru nokkrar myndir. Strákarnir hafa verið með eindæmum krúttlegir og grátbeðið mig um að flytja ekki út – svo ég er eiginlega hætt við.

Svo hef ég hangið með stelpunum, þær hringdu í mig í gær þar sem ég var við það að sofna á sófanum lesandi Dracula (fyrir skólann, en helvíti er hún góð) og drógu mig á Revolution, þar sem var ógurlegt student night í gangi – frí vodkaskot, 2-4-1 á kokkteilum, frí pizza og ég veit ekki hvað og hvað. Stuð. Mér tókst því miður að týna hattinum mínum :( :(:(:( ömurlegt! Framundan er rosa dagskrá í sósíallífinu og svo styttist í Parísarferðina :) Frekari upplýsingar hafa borist, við munum semsagt syngja með Lady&Bird á íslensku menningarkvöldi og Gus Gus munu einnig koma fram. Tónleikahöllin er rosa flott!





mom for a week

17 01 2006

Svona eftir að hafa verið mamma í ca. 11 daga þá er ég alveg að fíla þetta í botn. Við vitum nottla voða lítið hvað við erum að gera, en so far snýst þetta aðalega um mjólk, og þar sem sú uppspretta er föst á mér þá reddast þetta. Það er alveg merkilegt hvað maður getur spáð í mjólk, hægðum, prumpi og ropa! þetta eru mikil fræði skal ég segja ykkur! En allt hefur sum sé gengið roslega vel. Katla drekkur eins og brjáluð, sem þýðir að ég hef ekki komist neitt út eila, er orðin hvítari en allt hvítt, gengin í félagið “foreldrar með skyr á öxl” og geng einungis með dömuilminn “mjólkurangan mömmu”. Lovin it…

Annars eru síðustu dagar samt búnir að vera frekar furðulegir þar sem ég er búin að vera í e-u tilfinningajójói þar sem skiptist á óendanleg hamingja með okkar lukku og svo sorg út af litlu Rósu. Kolla og Haukur eiga alla mína samúð….er orðlaus yfir svona óréttlæti.





15 01 2006

Ég er heldur betur búin að eyða miklum tíma með þeim amerísku um helgina (reyndar ein kanadísk og ein spænsk). Það var ágætt – á tímabili lét ég háværa New York hreiminn fara aðeins í taugarnar á mér heehhe en það leið hjá. Fór svo á Jarhead í kvöld með þeirri spænsku og þeirri kanadísku. Mjög góð mynd. Ef það eru svona miklir fávitar í alvöru í landgönguliðinu then I don’t feel so safe. Jake Gyllenhaal, aka herra sætur, er auðvitað æði og ófá skot af honum fáklæddum. Það eitt gerir það þess virði að sjá myndina ;) Og takk Héðinn fyrir þetta stórkostlega símtal í gær :) :):):) þú ert snillingur! Ég hló og hló – og stelpurnar hlógu og hlógu að íslenskunni :)

Mikið pælt í strákamálum yfir helgina. Mikill kúltúr munur á því milli Íslands og Bandaríkjanna. Átti langar umræður um deitmál við aðra New York skvísuna, sem sagði að ef gaurinn borgar ekki allt, þá er ekki séns að hitta hann aftur. Sama þótt deitið hefði verið fokking fullkomið. Neibb, prinsipp númer eitt, tvö og þrjú – gaurinn borgar ALLT! Svona virkar þetta víst í Stóra Eplinu. Ég var þessu algjörlega ósammála, ég myndi undir öllum kringumstæðum stinga upp á að reikningnum væri skipt. Ég þótti mjög hallærisleg. Hvað veit ég svosum um deit? Ég bara spyr.

Nýja áramótaheitið mitt um að vera enginn aumingi er að virka ágætlega. Hætt að nenna að reyna að koma mér út úr óþægilegum aðstæðum með óþarfa kurteisi og aumingjaskap. Ég segi nei við að gefa út númerið mitt eða sting uppá að ég fái númerið þeirra, svona til þess að losna við þá. Þetta er að gera sig – fyrir utan alveg ferlega ljóskulegt dæmi. Ég sagðist mundu taka númerið hans, samviskusamlega setti það inní símann og gaurinn segir svo: “hringdu og athugaðu hvort þetta sé ekki örugglega rétt..” Og hvað gerir Lovísa? Jú á sekúndubroti er hún búin að ýta á Call takkann í stað þess að bara sýna honum skjáinn og láta hann tékka. Og tók of langan tíma að fatta að svona myndi gaurinn fá númerið, sem hún hafði vandað sig svo við að myndi ekki gerast! Lovísa fífl. Enn ein helgin þar sem símtölum úr óþekktum númerum er ekki svarað.

Eitt gott kvikmyndamóment þó sem kom útúr þessu. Vesalings gaurinn hljóp á eftir mér útí leigubíl, eftir að ég hafði vinsamlegast beðið hann að láta mig í friði eftir langa og drafandi útgáfu af hvernig kærastans hans hélt framhjá honum og hvað hann hafi verið særður og núna eftir tíu mánuði sé hann tilbúinn að deita aftur og svo fraaaaaamvegis, mjög uppáþrengjandi og hljóp svo á eftir mér alveg “wait, wait..!”(have some pride man), og ég skellti leigubílahurðinni í klofið á honum. Óvart – en mikið var þetta samt fyndið. Svipurinn á manninum var óborganlegur, blanda af sársauka og höfnun. Honum var nær.

Nú á þetta engan veginn að hljóma að ég sé það hot að ég bara fái ekki frið. Nei nei svona er þetta bara. Óþolandi að öll samtöl (15 sek og yfir) þurfi að enda á að biðja mann um númerið.





já var það ekki???

14 01 2006

Fór á Trio í gær með Ericu hinni amerísku (sem kallar staðinn Hottie Heaven heheeh)og Sofiu hinni spænsku. Hafði verið í bandi við þær allt kvöldið og fannst þær eitthvað undarlegar og eins og ég væri í raun ekki velkomin með. Svo kom útskýringin þegar Erica kom með játningu: “veistu, to be honest, þá vorum við ekkert sérstaklega spenntar að fá þig því við héldum að þú myndir koma með stelpuna sem þú býrð með.. en vá, þú verður ALLTAF að djamma með okkur héðan í frá!!”

Einhvern veginn er þetta akkúrat það sem ég hafði óttast. Kom heldur ekki á óvart miðað við þennan rokna fýlusvip sem sumir skörtuðu þegar ég kynnti suma fyrir þeim. Fýlusvipur og kvartanir eru ekki vænlegar til árangurs að eignast vini.

Oh Ida sendi mér þessa frábæru grein um Egyptaland :) :) Hlakka enn meira til núna. Já og var ég búin að minnast á að ég bókaði ferð til Dublin á degi heilags Patreks sem er jú föstudagur í ár (lesist: geðveikt stuð!!)? Þar ætlum við Ella írska að mála bæinn rauðan. Kannski grænan í tilefni dagsins.





samúðarkveðja

13 01 2006

Það er erfitt að fara eitthvað að blogga um daginn og veginn þegar sorgin hefur knúið dyra. Ég vil að Haukur og Kolla viti að hugur minn er hjá þeim. Heimurinn er svo óréttlátur stundum – óréttlátt að Rósu litlu hafi aldrei hlotnast sú gæfa að sjá hversu elskað barn hún var. Stundum veit maður ekki hvað Guð er að pæla.





FRJÁLS :)

11 01 2006

Jesssss ég er búin í prófum!!!! oh hvað það er yndislegt! Hefði þó auðvitað viljað vera búin í prófum heima á Íslandi, en jæja, maður getur víst ekki fengið allt. Allavega, ég læt sko ekki segja mér tvisvar að ég sé búin í prófum og er strax komin með einn kaldan í hægri hönd. Það er stefnt á margarítur og mojitos á Las Iguanas með Melissu í kvöld. Svo ætla ég að liggja í leti og horfa á sjónvarp – það hef ég ekki gert mjög lengi þar sem sjónvarp er ekki í miðpunkti heima hjá foreldrum mínum. America’s Next Top Model 5.sería byrjar hér á mánudaginn kl. 9. Kvöldið hefur verið tekið frá. Á morgun stefni ég svo á að elda hangikjöt með uppstúf, grænum baunum og rauðkáli handa sambýlingum mínum. Jæks!

Var alveg pínu pirruð útí sambýliskonu mína áðan – ég hef allavega EKKERT saknað hennar í jólafríinu. Hún þarf alltaf að setja okkur báðar undir sama hatt félagslega og það fer alveg massa í taugarnar á mér. Hún að tala um hvað hún þekki engan og segir svo “það er eins og enginn vilji kynnast okkur” og “þú þekkir engan heldur..”, sem er bara ekki rétt!! Ég veit ekki betur en að ég hafi farið til Amsterdam með einni, kynnt hana fyrir fullt af amerískum stelpum og sé að fara með einni kanadískri út að borða í kvöld, hún hafi setið með enskum kunningjum mínum á borði á árshátíðinni osfrv. ARG! Ég get ekkert að því gert þótt hennar félagslegu hæfileikar séu á við manneskju í kóma. Hún líka gerir of miklar kröfur á fólk og svona alveg FÁRÁNLEGAR – ef fólk sýnir ekki konstant áhuga á Danmörku og danskri málfræði og er ekki yfir sig spennt yfir að koma í te, þá er það bara off. Hvernig væri að get a life svo að maður hafi um eitthvað að tala??

jæja vó ok þarna missti ég mig kannski aðeins. En trúiði mér, ég er þolinmóð! Sú kanadíska (sem upphaflega ætlaði að búa með henni) skilur ekki hvernig ég fer að þessu. Hún væri löngu flutt út.

Neil er fluttur til Leeds :) :) vei vei vei.

hér eru svo nokkrar myndir frá Íslandsdvölinni. Verð að viðurkenna að mér fannst soldið glatað að yfirgefa Kötlu litlu. Langaði að kynnast henni aðeins betur. Enn glataðra að fá ekkert að sjá dóttur Þóru þegar hún kemur í heiminn.

og um þessa könnun hef ég aðeins eitt að segja: WHAT??? hvað er málið með hamarinn??

Your Birthdate: July 7
You are an island. You don’t need anyone else to make you happy.And though you see yourself as a loner, people are drawn to you.Deep and sensitive, you tend to impress others with your insights.You also tend to be psychic – so listen to that inner voice!


Your strength: Your self sufficiency
Your weakness: You despise authority
Your power color: Maroon
Your power symbol: Hammer
Your power month: July

What Does Your Birth Date Mean?