Ja hérna. Síðasti dagur ársins. En skrítið. Vegna anna verður bloggannáll minn settur inn á morgun, skelþunn á fréttastofuvakt. Ég á að mæta á vaktina á hádegi á nýársdag. Skál fyrir því.
En það hefur nú ekki stoppað mig hingað til. Maður meikar daginn bara, dópar sig upp af einhverju örvandi og sefur seinna. En ég hugsa að maður hafi það nú samt alltaf bakvið eyrað að maður á að mæta daginn eftir, ætla ekki að vera sauðdrukkin og vitlaus og komast ekki á lappir.
Nú er ég að undirbúa hið árlega áramótapartý Fréttó – merkja 120 bækur fyrir bókaútdráttinn, sjá um að langborð komi hingað, snittur og freyðivín er kælt… eftir að hafa skálað við liðið þá tek ég strikið heim og LEGG MIG!! er freeeeekar sybbin eftir viðburðarríka nótt og VERÐ að ná smá bjútíblundi ef ég ætla að halda mér á fótum í kvöld! Stefnan er svo sett á kalkún hjá gamla settinu, áramótaskaup (þarf ekki að horfa á innlenda annálinn í ár þar sem ég er búin að sjá hann, hann var forsýndur með pompi og pragt í lúxussal Smárabíós í gær, ásamt bjór og Subway! ekki slæmt!) og stjörnuljós sem mér finnast ómissandi. Svo er það Páll Óskar á NASA. Júhú!!
Gleymdi að kaupa fatalím til að halda kjólnum upp um mig – þetta er lúmskur kjóll! en vonandi hoppa búbburnar ekki upp!
Að lokum vil ég hvetja alla til að leggja sitt af mörkum til söfnunar Rauða krossins, símanúmerið er 907-2020. Ég hef verið hálfskælandi yfir fréttunum og að sjálfsögðu búin að hringja. Mamma vildi minnka flugeldakaup og leggja í söfnunina í staðinn – ég styð það heilshugar. Og þvílíkur SKANDALL að íslenska ríkisstjórnin ætli bara að leggja FIMM MILLJÓNIR í hjálparstarfið!!! Varð yfir mig hneyskluð!! Hvað er AÐ fólki???
Enjá, gleðilegt gamlárskvöld allir saman! Góða skemmtun!!
Nýleg ummæli