kúr

18 07 2008

æh það er svo gott að kúra með loðdýrinu..

 

ég meina, það er bara gjörsamlega ómótstæðilegt að knúsa hann…

 

Þótt að kærastinn minn sé ekki Superman, þá flýgur hann samt um loftin blá.. Sko kallinn!

 

og að lokum, eitt óviðeigandi video.. ég man eftir því í Kaíró (þegar við corinne héldum að við værum að fara á magadansshow en lentum einhvern veginn á karlaklúbbi) hvernig mennirnir létu peningunum rigna yfir dansmeyjarnar, en þegar dansmærin er þriggja ára þá einhvern veginn lítur þetta skringilega út!!!





búó - ríó

15 07 2008

Jæja nú höfum við Jóa formlega gengið frá gististöðum í Buenos Aires og Rio de Janeiro jibbííííí.. aðeins á eftir áætlun samt, en við gerðum fjölmargar tilraunir til að ganga frá þessu fyrr og ekkert gekk - einhvern veginn enduðum við alltaf með fullt af fólki á djamminu eða eitthvað svoleiðis.. svo í dag var hist um miðjan dag og ekkert verið að spjalla neitt mikið um annað en ferðina!

En allavega.. check this out, við ætlum að gista á The Four B&B Hotel í Buenos Aires. Þetta tiltekna hótel varð fyrir valinu því það er ógó smart (amk á myndunum!) og það er staðsett í San Telmo hverfinu. Við vorum spenntar fyrir því, þar sem það á að vera eitthvað svona bóhem listamannahverfi með hellulögðum götum, ægilega litríkt með tangó dönsum á götunum og milongas (þar sem fólk kemur saman og dansar tangó, svona social dansar) og bestu svona alvöru steikarstöðum (þá erum við að tala um djúsí steik og rauðvín fyrir um það bil 800 ísk!!). Við vildum líka gista á almennilegum stað eftir 2 vikna drulluferð í Perú og Amazon frumskóginum :)

Það var eiginlega öllu flóknara að velja stað til að gista á í Ríó. Upphaflega ætluðum við að fara á eitthvað ódýrt hostel og vera með einhverjum öðrum ferðalöngum en svo í dag sveifluðumst við til og frá með það.. Hvorug okkar er nefnilega eitthvað óð í strönd, fínt að fara þangað í einn dag eða svo, en óþarfi að vera þar í 4 heila daga. Frekar að vera stutt frá mörgu öðru og finna hostel með sundlaug ;) Og svo hötum við túristapakkaða staði.. sem Copacabana og Ipanema svæðið er… Svo Rio Hostel varð fyrir valinu. Stutt í frábært næturlíf og Jesústyttuna og Sykurfjallið (heitir það það á íslensku??), en líka í meira svona lókal hverfi með sjarmerandi götum og veitingastöðum. Og auðvitað alveg annað ungt fólk á svæðinu, nóg af sætum gististöðum í sömu götu og allt. Ekki skemmir fyrir að þetta hostel var Lonely Planet’s Choice 2005 og 2006.

Ég er ógó sátt við þetta allt saman, gott að vera búin að ganga frá þessu og þurfa bara að mæta á svæðið :) íííííík hvað ég hlakka til!!!!

Hefur einhver lesandi síðunnar komið til þessara borga? og getur jafnvel sagt okkur hvort þessi hverfi séu ekki góðir kostir? :)





kisi

2 07 2008

weee ég á líka ógissla sætan kettling!!! sjáið hvað EMIL er mikið KRRRÚÚÚÚTTT!!

 





strandblak kvenna

29 06 2008

Strandblak kvenna er ein vinsælasta íþróttagreinin á Ólympíuleikunum. Að minnsta kosti í áhorfi talið. Þetta vissu menn hér á sportinu fyrir 4 árum síðan, þegar þeir sýndu greinina í öllum “götum” í dagskránni. Bara tilbúið klippt til sýningar! (Mér skilst þó að þetta verði ekki gert á eins markvissan hátt í ár. Sorry boys.)

En nú er ég aldeilis hlessa.

Ég var nefnilega að frétta að það eru strangar reglur um keppnisbúning liðanna. Sko, í kvennaflokki, ekki karlaflokki.

Bikinibuxurnar sem konurnar klæðast mega ekki vera breiðari yfir mjöðm en sem nemur 6 cm.

“Nújá”, gætu sum ykkar hugsað, “ég vissi ekki að þetta hefði svona mikil áhrif á getu þeirra til að spila íþróttina!” En nei. Þetta hefur ekkert með getu að gera. Heldur hefur þetta bein áhrif á áhorfið! Ekki grín.

Því minni buxur, því meira áhorf.

Karlmenn eru í hólkvíðum buxum sem ná nánast niður á hné.

Ósanngjarnt, anyone? Asnalegt, anyone? Móðgandi, anyone?

Eða kannski bara gott og gilt? Þeim er nær að velja sér strandblak sem íþróttagrein? Þær vita út í hvað þær eru að fara?





Aaahhh…

27 06 2008

Það er eitthvað svo notalegt að lesa fréttir á mbl.is af snjókomu og hálku heima þegar maður er í rúmlega 30 gráðu hita og sælu víðsfjarri… :)

Sumsé, ofur vísitölusumarfrí vísitölufjölskyldunnar er ekkert nema gott, það skemmir heldur ekki að vera á spáni þegar spánn er að meika það á EM :) geeeeðveik stemmning hérna í gær! Svo er bara að galla alla familíuna upp í official spánartreyjur fyrir sunnudaginn og kenna Kötlu að segja Viva Espania!

Annars ætlaði ég bara aðeins að monta mig og ef þið viljið fylgjast með vísitölunni þá kíkjiði bara hingað

Addios amigos!





færsla fyrir Jóu

25 06 2008

Vegna fjölda áskorana (Jóu) ákvað ég að blogga. Enda hef ég ekkert betra að gera. Ég er nefnilega lasin heima. Ég hljóma eins og eftir fimmfalda verslunarmannahelgi með 50 sjóurum. Jább, ég er SVO rám. Ég vildi óska að ég væri rám af því að hafa náð mér í kvef við að velta mér upp úr dögginni. Það væri ógó kúl. En nei, ég var ekki að gera neitt svoleiðis. Hvorki fimmföld verslunarmannahelgi né jónsmessudögg.

Nei nei. 

-Sá bara íslenska kvennalandsliðið í fótbolta bursta Slóveníu í bestu sætunum á vellinum.

-Naut 17. júní úti og grillaði.

-Hélt skemmtilega útskriftarveislu. Takk allir fyrir mig!! wow u..

-Kíkti út á lífið með Jóu, Ívari bró og Gústa.

-Hitti fullt af Kópavogsskólafólki. Þar á meðal kíkti ég á flottustu gæs laugardagsins á Austurvelli, Hrefnu (sem var aðeins of hott í latexhjúkkubúningnum fyrir some men to handle).

-Uppgötvaði að það er almenningsgrill í Hljómskálagarðinum þegar ég fór í pulsupartý í gær til Sólrúnar.. meeeen hvað það er sniðugt..

-Klárað fyrstu Terry Pratchett bókina mína.

-Legið á stuttbuxum og hlýrabol út í garði.

-Séð nýfædda grísi á miðnæturopnun í Húsdýragarðinum.

-Borðað á Tapas (jömmí) (viðbót 28.júní: OG ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGA SKEMMTILEGT MEÐ SKEMMTILEGUSTU STELPUM Í HEIMI) og Brons (ekki eins jömmí, þó er víst verið að skipta um matseðil svo kannski maður gefi þessu annan séns)

-Fengið mér frosna margarítu á Tabasco’s. Örugglega ekkert mikið tequila í henni…

-Borgað 3.200 fyrir tvo White Russian á Apótekinu. OKUR! En jæja.. Supreme pizza á Hróa Hetti kostar 3.790 kr. OOOOOKUR! 

hmmm. Ekki er þessi færsla nein tímamótafærsla. Maður ætti kannski að snúa sér aftur að THS: A True Hollywood Story á E! um Kardashian fjölskylduna. Æsiæsiæsiæsispennandi.

Jóa, þessi færsla var fyrir þig ;)





bókmenntafræðingur

14 06 2008

Í dag er ég formlega komin með háskólamenntun. Er ekki nýi titillinn minn fínn?

Ég er að íhuga að setja þetta aftan við nafnið mitt í símaskrána. Mér finnst það svona við hæfi. Og svona “has a nice ring to it”. Lovísa Árnadóttir, bókmenntafræðingur *lesist upphátt*. Ekki spurning.

Skál fyrir mér!





krossarahetjan

13 06 2008

 

Ójá. Þetta er ég.

Það tók smá stund að bara að læra að komast af stað.

Svo að forðast runnana og trén. Keyrði þrisvar inn í svoleiðis vesen. Er m.a.s. með rispur á handleggnum (ógó kúl krossarameiðsl).

Næst læri ég að skipta um gír!





Nei þessi leigugúmmídúkka flytur ekki inn hér

27 05 2008

Þetta ætti að skemmta ykkur á meðan ég sleiki sólina á Tenerife. Dömur mínar og herrar, hér er myndbandið við nýjasta lag Leoncie, Enginn þríkantur hér:





júró-Idu-helgi búin

26 05 2008

Jæja, þá er þessi helgi afstaðin. Ógó skemmtileg bara. Ida og Dan voru rosa fín, afslöppuð og ákveðin að skemmta sér vel. Það var þeyst um allt og ég er alveg búin núna… Núna er bara að pakka því ég er að fara til Tenerife !! jibbíííííí!!! :)

Eurovision - partýið var frábært, mikið stuðlið saman komið og árleg nördaheit fengu að njóta sín yfir trylltum dansi við gömul sem ný Eurovision lög. Eurobandið sannaði fyrir öllum efasemdarmönnum að þarna áttu þau heima, maður átti bara nett Selma-1999-móment yfir að sjá þau á sviðinu :)

Sigurlagið er samt þvílíkur hryllingur og atkvæðagreiðslan var hneyskli. Enginn í partýinu var nálægt úrslitum og aðeins 2 af 20 höfðu Rússland á topp 5. Segir allt sem segja þarf. Og mér finnast atkvæðagreiðslugreiningarnar ansi athyglisverðar - ef atkvæði Austur-Evrópulandanna eru tekin í burtu, þá hefði Rússland verið í 5. sæti. Ísland hefði verið í 7. sæti. Helvíti hefði það nú verið flott.

Það sem stendur samt uppúr er að Svíagrýlan var val dómnefndar upp úr undanúrslitunum!!! MÚAHAHHAHAHAA.. og 18. sæti í úrslitum MÚAHAHHAHAHAHA.. ef ég á að segja alveg eins og er, þá held ég að það sé bara vegna útlits hennar.. ég meina, þvílíka plastfríkið, maður sjokkerast allur við að sjá hana á sviðinu og hún er bara fráhrindandi. Þvílíkur útlitsmunur frá 1999 og 2008!!!

Jæja - best að fara að pakka.